Hvaða þjónustu er verið að lýsa?
Sækja þarf um byggingarleyfi til að byggja nýtt hús, endurbyggja hús, rífa hús, byggja við hús eða breyta húsi. Einnig þarf byggingarleyfi fyrir sólpalla, girðingar, heita potta, garðhýsi og skúra.
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?
Húseigendur, lóðarhafa og umboðsmenn þeirra.
Hvað kostar hún?
Sjá gjaldskrá í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Fyrirspurnum um byggingarleyfi og hvort leyfisveiting kemur til greina er svarað hjá byggingarfulltrúa byggingarfulltrui@fjardabyggd.is og í síma 470-9000.
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, á Hafnargata 2, 730 Fjarðabyggð og einnig er hægt að afhenda umsóknir á bókasöfnum Fjarðabyggðar.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Sótt er um byggingarleyfi eyðublaði fyrir „byggingarleyfi“ sem hægt er að nálgast á heimasíðu Fjarðabyggðar og bókasöfnunum. Sjá einnig gátlista (sem er í vinnslu) um viðbótargögn
Ferli umsóknar
1. Umsækjandi sendir inn umsókn.
2. Byggingarfulltrúi tekur umsóknir til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.
3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.
4. Svarbréf sent til umsækjanda.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000. Ef umsókn er synjað getur umsækjandi kært niðurstöðu til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála og leiðbeinir byggingarfulltrúi um kæruleið og kærufrest. Úrskurður nefndarinnar er fullnaðarúrskurður á stjórnsýslusviði.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar, umhverfisstjori@fjardabyggd.is sími 470 9000.