Hvaða þjónustu er lýst?
Umsókn um nýtt eða breytt deiliskipulag. Deiliskipulag er skipulagsáætlun fyrir afmörkuð svæði eða reiti innan sveitarfélags sem byggð er á aðalskipulagi og kveður nánar á um útfærslu þess. Ákvæði um deiliskipulag eiga jafnt við um þéttbýli og dreifbýli. Sveitarstjórn ber ábyrgð á og annast gerð deiliskipulags. Tillaga að deiliskipulagi getur einnig verið unnin á vegum landeigenda eða framkvæmdaraðila og á kostnað þeirra. Deiliskipulag er háð samþykki sveitarstjórnar. Deiliskipulag tekur gildi þegar samþykkt þess hefur verið birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?
Þjónustan er fyrir þá sem hyggjast reisa mannvirki og/eða breyta ásýnd lands á landssvæði sem hefur ekki verið deiliskipulagt.
Hvað kostar þjónustan?
Breyting á deiliskipulagi eða nýtt deiliskipulag sem er unnið að ósk landeiganda eða framkvæmdaraðila er að öllu jöfnu alfarið á þeirra kostnað og er ekki samkvæmt gjaldskrá.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Skipulagsfulltrúi, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð veitir upplýsingar um þjónustuna í síma 470 9000, skipulagsfulltrui@fjardabyggd.is
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Umsækjandi um nýtt eða breytt deiliskipulag skal senda skriflega umsókn til skipulagsnefndar Fjarðabyggðar ásamt nauðsynlegum gögnum um fyrirhugaða framkvæmd.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Skipulagsfulltrúi veitir upplýsingar um nauðsynleg gögn hverju sinni.
Ferli umsóknar
1. Umsókn skal send skipulagsfulltrúa sem yfirfer hana og leggur fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Nefndin eldur fundi einu sinni í mánuði að jafnaði.
2. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur umsóknina til afgreiðslu.
3. Bæjarstjórn staðfestir eða hafnar niðurstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar.
4. Tillagan fer í auglýsingarferli sbr. 25.gr.skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 eða ef um óverulega breytingu er að ræða fer tillagan í grenndarkynningu sbr. 2. mgr. 26.gr. sömu laga.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Ábendingum og kvörtunum má koma til mannvirkjastjóra eða forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Mannvirkjastjóri í síma 470 9000, mannvirkjastjori@fjardabyggd.is