Spurt og svarað um framkvæmdaleyfi:



Framkvæmdaleyfi

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Framkvæmdaleyfi

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að  sækja um þjónustuna?

Framkvæmdaleyfi er leyfi fyrir meiri háttar framkvæmdum sem ekki eru háðar byggingarleyfi svo sem leyfi fyrir gerð gatna, holræsa, vega og brúa annarra en göngubrúa í þéttbýli, jarðgangana, flugbrauta, dreifi- og flutningakerfa rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, hafna, virkjana, efnistöku svæða, sorpförgunar og annarra meiriháttar framkvæmda sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess.

Áður en framkvæmdaleyfi er veitt skal liggja fyrir hvort framkvæmdin sé háð mati á umhverfisáhrifum. Ef framkvæmd er háð mati á umhverfisáhrifum skal því lokið áður en framkvæmdaleyfi er veitt.

Umsókn um framkvæmdaleyfi skal vera skrifleg og undirrituð eða samþykkt af landeiganda.

 

Hvað kostar þjónustan?

Framkvæmdaleyfishafi greiðir þann kostnað sem umsókninni og eftirliti með framkvæmdinni fylgir.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsókn um framkvæmdaleyfi skal berast bókasöfnunum eða í pósti á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð merkt  Skipulagsfulltrúa.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Umsækjandi framkvæmdaleyfis skal senda um það skriflega umsókn til umhverfis- og  skipulagsnefndar ásamt nauðsynlegum gögnum um fyrirhugaða framkvæmd.

Nauðsynleg gögn eru uppdráttur í þremur eintökum sem sýnir framkvæmd og afstöðu hennar í landi, nánar tiltekið yfirlitsuppdráttur í mælikvarða 1:50.000-1:5.000 þar sem fram koma mörk viðkomandi svæðis, tenging þess við þjóðveg, hæðarlínur og mannvirki sem fyrir eru á svæðinu. Þar sem það á við skal einnig leggja fram afstöðuuppdrátt í mælikvarða 1:2.000-1:1.000 þar sem fram koma mörk viðkomandi svæðis, hæðarlínur, mannvirki sem fyrir eru á svæðinu og upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir eftir því sem við getur átt. Auk þess fylgigögn þar sem fram kemur lýsing á framkvæmd og hvernig framkvæmd fellur að gildandi skipulagsáætlunum ásamt öðrum upplýsingum sem umhverfis- og skipulagsnefnd telur nauðsynlegar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd getur í einstökum tilvikum afgreitt umsóknir um framkvæmdaleyfi á grundvelli skýrslu og úrskurðar um mat á umhverfisáhrifum og/eða deiliskipulags án þess að ákvæðum laga  sé fullnægt, enda þyki þá fullnægjandi grein gerð fyrir framkvæmd þar.

Ferli umsóknar  

1.     Umsókn skal berast skipulagsfulltrúa sem yfirfer hana og leggur fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd.

2.     Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur umsóknina til afgreiðslu.

3.     Bæjarstjórn staðfestir eða hafnar niðurstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar.

4.     Skipulagsfulltrúi gefur út framkvæmdaleyfi. 

Nánari upplýsingar veitir skipulagsfulltrúi í síma 470-9000, skipulagsfulltrui@fjardabyggd.is

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri umhverfisstjori@fjardabyggd.is – sími 470 9000.