Stöðuleyfi

Sótt er um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa og er umsókn hluti af byggingarleyfisumsókn. Stöðuleyfi er heimild til að staðsetja hjólhýsi, gáma, torgsöluhús og þess háttar  á tilteknum stað í takmarkaðan tíma. Stöðuleyfi getur gilt lengst í eitt ár. Nánari upplýsingar um stöðuleyfi og forsendur leyfisveitingar veitir byggingarfulltrúi á netfanginu byggingarfulltrui@fjardabyggd.is 
eða í síma 470 9000.

 

Ferli umsóknar 

  • Byggingarfulltrúi tekur innsendar umsóknir
    til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.
  • Málið fer fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd,
    sem fundar tvisvar í mánuði.
  • Svarbréf sent til umsækjanda.
  • Skila má umsóknum inn á byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, bæjarskrifstofu eða þjónustugáttum bókasafna.

Fylgigögn með umsókn

  • Samþykki eiganda eða lóðarhafa þeirrar lóðar sem fyrirhugað er að lausafjármunirnir standa á.
  •  Einnig þurfa að fylgja með uppdrættir og önnur gögn sem nauðsynleg eru til þess að sýna staðsetningu, útlit, fyrirkomulag og öryggi lausafjármunanna. 

ÁBENDINGAR OG KVARTANIR

Mannvirkjastjóri Fjarðabyggðar, 
mannvirkjastjori@fjardabyggd.is  
eða forstöðumaður stjórnsýslu,
fjardabyggd@fjardabyggd.is
sími 470 9000.

YFIRSTJÓRN

Mannvirkjastjóri Fjarðabyggðar,
mannvirkjastjori@fjardabyggd.is,
sími 470 9019.