Spurt og svarað um fundartíma:



Fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Fundir bæjarráðs og nefnda eru lokaðir en fundir bæjastjórnar eru opnir almenningi.Forstöðumaður stjórnsýslu veitir nánari upplýsingar um málsmeðferð og málshraða í síma 470 9000. Hann veitir einnig upplýsingar um í hvaða farveg best er að beina erindum.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Fundir bæjarstjórnar eru haldnir fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði á bæjarskrifstofunni á Reyðarfirði.

Fundir bæjarráðs eru haldnir vikulega á bæjarskrifstofunni á Reyðarfirði.

Fundir í nefndum eru alla jafna haldnir á bæjarskrifstofunni á Reyðarfiirði á eftirfarandi dögum.

Atvinnu- og menningarnefnd eftir þörfum á fimmtudögum.

Barnaverndarnefnd eftir þörfum á þriðjudögum

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd eftir þörfum á mánudögum.

Félagsmálanefnd eftir þörfum á mánudögum.

Fræðslu- og frístundanefnd eftir þörfum á miðvikudögum.

Hafnarstjórn eftir þörfum á þriðjudögum.
 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Erindi til bæjarráðs eða nefndar skal stílað á bæjarráð eða viðkomandi nefnd og sent á:

Bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar
Hafnargötu 2
730 Fjarðabyggð

Erindum er einnig hægt að skila inn erindum inn á bókasöfnin í Fjarðabyggð.  Erindum er svarað eftir umfjöllun í viðkomandi nefnd og bæjarstjórn.   Forstöðumaður stjórnsýslu veitir nánari upplýsingar um málsmeðferð og málshraða í síma 470 9000. Hann veitir einnig upplýsingar um í hvaða farveg best er að beina erindum.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Forstöðumaður stjórnsýslu - fjardabyggd@fjardabyggd.is  og í síma 470 9000.


 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Forstöðumaður stjórnsýslu í síma 470 9000