Spurt og svarað um stjórnsýslu:



Nefndir og ráð

  Sjá upplýsingar um starfandi nefndir stjórnir og ráð

26. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 26. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
mánudaginn 16. janúar 2012
og hófst hann kl. 16:45

 

 

Fundinn sátu: Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Ásta Eggertsdóttir, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, Gunnar Ragnar Jónsson,Guðlaug Dana Andrésdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir félagsmálastjóri. Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir boðaði forföll.

 

Fundargerð ritaði:  Sigrún Þórarinsdóttir

 

 

Dagskrá:

 

1.

1111049 - Þjónustukönnun meðal íbúa Fjarðabyggðar

Lögð fram til kynningar þjónustukönnun sem var unnin af Capacent í október 2011. Í niðurstöðum könnunar koma fram ábendingar um það sem betur má fara í þjónustu við fatlað fólk og aldraða í Fjarðabyggð. Nefndin tekur ábendingar til sín og felur starfsmönnum sviðsins úrvinnslu.

 

2.

1201074 - Breyting 2012 á viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka - húsaleigubætur

Lagt fram til kynningar erindi frá Velferðarráðuneytinu vegna eignamarka húsaleigubóta á árinu 2012. Frá og með 1. janúar sl. er uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta 6.383.000 kr.

 

Með reglugerð nr. 1222/2011 skerðast húsaleigubætur um 1% af árstekjum umfram 2,25 millj. kr. í stað 2 millj. kr. áður.

 

3.

1109137 - Húsaleigubætur 2011

Lagt fram svarbréf Velferðarráðuneytisins vegna túlkunar á leiðbeinandi reglum um húsaleigubætur en þar segir m.a.:

 

Ráðuneytið hefur farið yfir stöðu þeirra nemenda sem stunda nám í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga lögheimili en dvelja engu að síður ekki á lögheimili sínu þar sem skólinn er staðsettur fjarri því. Þykir mikilvægt að undanþága 2. mgr. 4. gr. laga um húsaleigubætur eigi einnig við um þau tilvik. Hefur verið tekin ákvörðun um að hefja vinnu við endurskoðun á viðeigandi ákvæðum laga um húsaleigubætur.

 

Nefndin fagnar því að endurskoðun verði hafin á lögum um húsaleigubætur. Nefndin mælist til þess að Velferðarráðuneytið flýti þeirri vinnu eins og kostur er þar sem mismunun á grundvelli búsetu er fólgin í núverandi lögum.

 

Fyrri ákvörðun nefndar stendur.

 

4.

1112058 - List án landamæra 2012

Félagsmálastjóri gerir grein fyrir verkefninu List án landamæra sem fer fram á vormánuðum á Austurlandi. Fjarðabyggð mun nú vera þátttakandi í verkefninu.

 

5.

1110143 - Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 11.nóvember 2011

Fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands þann 11. nóvember 2011 lögð fram til kynningar.

 

6.

1103053 - Fundir - starfsdagar 2012

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir starfsdegi starfsmanna félagslegrar heimaþjónustu og félagsstarfi aldraðra sem haldinn var þann 12.01. sl.

Dagurinn lukkaðist mjög vel en fræðsla var fyrir hádegi á Reyðarfirði þar sem þátttakendur horfðu m.a. á myndina Hugarhvarf sem er fræðslumynd um alsheimer sjúkdóminn. Eftir hádegi var farið í heimsókn á Seyðisfjörð þar sem heilabilunardeildin var skoðuð.

 

7.

1103057 - Breiðablik 2011

Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra um málefni Breiðabliks og þjónustuíbúða. Nefndin samþykkir tillögu félagsmálastjóra að send verði umsókn um rekstrarleyfi til Velferðarráðuneytisins vegna þjónustuíbúða.

 

8.

1201148 - Bréf frá félagi eldri borgara á Fáskrúsðfirði vegna Glaðheima

Lagt fram bréf frá  eldri borgurum á Fáskrúðsfirði. Nefndin felur starfsmönnum að funda með eldri borgurum á Fáskrúðsfirði.

 

9.

1201168 - Fjárhagsaðstoð

Lögð fram greinargerð yfirfélagsráðgjafa. Nefndin samþykkir beiðni um fjárhagsaðstoð. Bókun færð í trúnaðarbók.

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  18:42.

25. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 25. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, mánudaginn 12. desember 2011 og hófst hann kl. 16:45

 

 

Fundinn sátu: Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Kristjana Guðmundsdóttir, Gunnar Ragnar Jónsson, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir félagsmálastjóri.

 

 

Fundargerð ritaði:  Sigrún Þórarinsdóttir

 

Dagskrá:

 

1.

1101058 - Stefnumótun félagsþjónustusviðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2011

Lögð fram lokadrög að sameiginlegri stefnumótun fyrir félagsþjónustu Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs. Formaður og starfsmenn gera grein fyrir vinnunni við skjalið frá síðasta fundi. Nefndin samþykkir stefnuna og vísar til fullnaðarafgreiðslu í bæjarráði.

 

2.

1109095 - Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2011

Lögð fram drög að jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar. Á árinu 2012 þarf nefndin að vinna aðgerðaáætlun þar sem leiðir að markmiðum sem koma fram í jafnréttisáætlun eru útlistuð. Nefndin felur félagsmálastjóra og varafomanni að kalla saman starfshóp til að fullvinna áætlun.

 

3.

1109137 - Húsaleigubætur 2011

Bókun færð í trúnaðarbók.

 

4.

1102013 - Reglur um liðveislu og eyðublað 2011

Nefndin samþykkir reglur um liðveislu og vísar til fullnaðarafgreiðslu í bæjarráði.

 

5.

1007146 - Tilfærsla málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga

Helga Þórarinsdóttir sat þennan lið fundar og gerði nefndinni grein fyrir ýmsum málum er að snúa að málaflokknum s.s. fjármagni, Jöfnunarsjóði, SIS mati ofl.

 

6.

1108090 - Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsum

Lögð fram umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsum. Nefndin felur starfsmanni að kalla eftir umsögn vinnuveitanda skv. 13. gr. reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005.

 

 

7. 1103057 - Breiðablik

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir stöðu mála vegna vinnu skv. reglum um þjónustuíbúðir aldraðra með þjónustustig 1 og aukningu á þjónustu við einstaklinga með minnissjúkdóma í Neskaupstað.

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45.

 

24. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 24. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
mánudaginn 28. nóvember 2011
og hófst hann kl. 16:45

 

 

Fundinn sátu: Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, Kristjana Guðmundsdóttir, Guðlaug Dana Andrésdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir félagsmálastjóri. Gunnar Ragnar Jónsson og Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir boðuðu forföll.

 

Fundargerð ritaði:  Sigrún Þórarinsdóttir

 

Dagskrá:

 

1.

1005030 - Dagvistunarúrræði fyrir aldraða/heilabilaða í Neskaupstað

Deildarstjóri sat þennan lið fundar. Formaður, deildarstjóri og félagsmálastjóri gerðu grein fyrir stöðu mála frá síðasta fundi. Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra um uppbyggingu dagvistunarúrræðis í Neskaupstað. Nefndin leggur áherslu á að veita þeim einstaklingum sem eru í þörf fyrir dagvistun, aukna félagslega heimaþjónustu, meðan unnið er að umsókn um rekstarleyfi til Velferðarráðuneytisins.

 

2.

1102013 - Reglur um liðveislu og eyðublað 2011

Frestað til næsta fundar.

 

3.

1111113 - Skýrsla starfshóps um fjárhagsaðstoð

Lögð fram til kynningar og umræðu skýrsla starfshóps um fjárhagsaðstoð. Nefndin fagnar skýrslunni og telur hana gagnlega í umræðu um stöðu fjárhagsaðstoðar í sveitarfélaginu.

 

4.

1101058 - Stefnumótun félagsþjónustusviðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2011

Lögð fram breytt drög að stefnu félagsþjónustusvæðanna. Formaður gerði grein fyrir samskiptum sínum við formann félagsmálanefndar Fljótsdalshéraðs. Nefndin felur formanni að funda með starfsmönnum og fara yfir breytingar. Félagsmálanefnd Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs munu samþykkja stefnuna þann 12. desember nk.

 

5.

1111105 - Hugmynd að samkomulagi til verndar börnum í bæjarfélaginu

Lagt fram til kynningar erindi frá Blátt áfram. Sigríður Margrét upplýsir nefndina um styrkveitingu frá Alcoa sem Fjarðaforeldrar fengu. Styrkurinn mun nýtast Fjarðaforeldrum í námskeiðshald á árinu 2012 á vegum Blátt áfram m.a. fyrir starfsmenn grunn- og leikskóla, starfsmenn íþróttamiðstöðva, dagforeldra og aðra sem starfa með börnum.

 

6.

1111106 - Tilnefning í nefnd um flutning á þjónustu við aldraðra til sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar minnisblað frá sambandi íslenskra sveitarfélaga um flutning á þjónustu við aldraða til sveitarfélaga.

 

7.

1111055 - Fjárbeiðni Stígamóta fyrir 2012

Lagt fram erindi Stígamóta vegna beiðni um fjárstyrk á árinu 2012. Nefndin getur ekki orðið við beiðni um fjárstyrk að þessu sinni þar sem ekki er gert ráð fyrir styrkveitingu í fjárhagsáætlun ársins 2012.

 

8.

1111107 - Samvinna félagsþjónustu og Útlendingastofnunar

Lagt fram til kynningar erindi frá Útlendingastofnun.

 

9.

1111112 - Gott aðgengi

Lagt fram til kynningar upplýsingar um aðgengiskerfi Access Iceland.

 

10.

1111027 - Öryggi barna hjá dagforeldrum: Framkvæmd reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum.

Lagt fram til kynningar bréf frá Velferðarráðuneytinu sem varðar öryggi barna hjá dagforeldrum í heimahúsum skv. reglugerð nr. 907/2005. Nefndin fagnar erindinu og brýnir mikilvægi þess að fylgjast vel með öryggi barna hjá dagforeldrum í Fjarðabyggð.

 

11.

1102059 - Jólasjóðurinn í Fjarðabyggð

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir undirbúningi um Jólasjóðinn í Fjarðabyggð.

 

12.

1111117 - 21.mál til umsagnar um málefni eldri borgara

Lagt fram til kynningar.

 

 

Félagsmálanefnd heimsótti þann 14. nóvember sl. Breiðablik og Bakkabakka. Einnig skoðaði nefndin Mýrina vegna hugmynda um úrræði fyrir dagvistunarúrræði einstaklinga með minnissjúkdóma í Neskaupstað.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30

 

22. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 22. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, miðvikudaginn 19. október 2011 og hófst hann kl. 16:45

 

 

Fundinn sátu: Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Ásta Eggertsdóttir, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, Guðlaug Dana Andrésdóttir, Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir.

 

Fundargerð ritaði:  Sigrún Þórarinsdóttir

 

 

Dagskrá:

 

1.

1108056 - Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd

Áframhaldandi vinna v. fjárhagsáætlunar ársins 2012.

 

2.

1110079 - Starfsáætlun félagsmálanefndar 2012

Áframhaldandi yfirferð á starfsáætlun. Nefndin felur félagsmálastjóra að fullvinna þær viðbætur sem voru lagðar fram á fundinum. Afgreiðsla starfsáætlunar vísað til næsta fundar.

 

3.

1110017 - Hvatning vegna kvennafrídagsins 25.okóber nk.

Lagt fram erindi frá Sambandi sveitarfélaga. Vísað í fyrri bókun félagsmálanefndar frá 03.10. sl. þar sem fjallað var um jafnréttismál, fræðslu og gerð jafnréttisáætlunar.

 

4.

1110080 - Fyrirspurn um afslátt fasteignaskatts (trúnaðarmál)

Lagt fram erindi vegna niðurfellingu fasteignagjalda. Nefndin hafnar erindi á þeim forsendum að ekki eru heimildir innan reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð  vegna niðurfellingu fasteignagjalda. Bókun færð í trúnaðarbók.

 

 

5.

1109137 - Húsaleigubætur 2011 (trúnaðarmál)

Lagt fram erindi vegna höfnunar á húsaleigubótum vegna dvalar á heimavist í lögheimilis sveitarfélagi umsækjanda.

Bókun færð í trúnaðarbók.

 

6.

1101139 - Drög að frumvarpi nýrra sveitarstjórnarlaga

Lagt fram til kynningar drög að frumvarpi vegna nýrra sveitarstjórnarlaga.

 

7.

1109181 - Vélsmiðjan á Eyrinni í Neskaupstað

Lagt fram erindi vegna Vélsmiðjunnar á Eyrinni í Neskaupstað. Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur starfsmönnum að skoða hugmyndir og nánari útfærslu í samráði við fræðslu- og frístundanefnd.

 

8.

1109256 - Áætlun um heildargreiðslu sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum árið 2012

Lagt fram til kynningar erindi vegna skil á áætlun um heildargreiðslu sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum árið 2012 til Jöfnunarsjóðs.

 

9.

1110081 - Forvarnarnálgun 0%

Lagt fram til kynningarbréf um forvarnarverkefnið Forvarnarnálgun 0%. Nefndin felur félagsmálastjóra að svara erindinu í samráði við fræðslustjóra og leggja jafnframt fram til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50.

21. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 21. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, þriðjudaginn 11. október 2011 og hófst hann kl. 16:45

 

 

Fundinn sátu: Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Ásta Eggertsdóttir, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, Gunnar Ragnar Jónsson, Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir félagsmálastjóri.

 

Fundargerð ritaði:  Sigrún Þórarinsdóttir

 

 

Dagskrá:

 

1.

1108056 - Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd

Fjárhagsáætlun félagsmálanefndar var tekin til umræðu.

 

2.

1110079 - Starfsáætlun félagsmálanefndar 2012

Félagsmálastjóri lagði fram drög að starfsáætlun nefndar vegna ársins 2012 í málefnum fatlaðs fólks og aldraðra. Unnin voru frekari drög að helstu áherslum nefndar í tengslum við fjárhagsáætlunargerð.

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50.

 

20. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 20. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði mánudaginn 3. október 2011 og hófst hann kl. 16:45

 

Fundinn sátu:

Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Ásta Eggertsdóttir, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, Gunnar Ragnar Jónsson, Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir félagsmálastjóri.

 

Fundargerð ritaði:  Sigrún Þórarinsdóttir

 

Dagskrá:

 

1.

1109095 - Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2011

Lagt fram til kynningar minnisblað félagsmálastjóra um stöðu jafnréttismála í Fjarðabyggð og tillögur vegna vinnu við jafnréttisáætlun. Jafnréttisstofa hefur veitt félagsmálanefnd frest til 1. desember nk. til þess að skila jafnréttisáætlun sveitarfélagsins en félagsmálanefnd fer með verkefni jafnréttismála. Jafnréttisstofa hefur áhuga á að koma austur og standa að námskeiðshaldi til þess að undirbúa vinnu við áætlunargerðina. Slíkt námskeið yrði Fjarðabyggð að kostnaðarlausu. Nefndin samþykkir tillögur í minnisblaði um skipan starfshóps um endurskoðun jafnréttisáætlunar. Nefndin felur janframt félagsmálastjóra að óska eftir aðkomu Jafnréttisstofu að námskeiðshaldi og fræðslu við gerð áætlunar.

 

2.

1109116 - Aðgerðaráætlun sveitarfélaga um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum

Lagt fram erindi Velferðarráðuneytis um aðgerðaáætlanir sveitarfélaga vegna kynbundins ofbeldis. Málið hefur ennfremur verið kynnt á fundi barnaverndarnefndar. Meðfylgjandi fundargögn til upplýsinga er aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar.

 

3.

1109086 - Úrræði sveitarfélaga til að rjúfa einangrun innflytjenda 2011

Lögð fram til kynningar skýrsla sem unnin var af Jónínu Brá Árnadóttur og fjallar um stöðu sveitarfélaga í málefnum innflytjenda. Skýrslan greinir frá stöðu mála í Fjarðabyggð og á Fljótsdalshéraði.

Markmið skýrslunnar var að skoða hvort og þá hver úrræði sveitarfélaga á Austurlandi eru til þess að rjúfa félagslega einangrun innflytjenda.  Rætt var við félagsmálastjóra og móttökufulltrúa nýrra íbúa við gerð skýrslunnar. Helstu niðurstöðu greina frá því að sú samvinna sem er á milli félagsþjónustusviðs og starfs móttökufulltrúa nýrra íbúa (Rauði krossinn) hafi gefið góða raun hvað varðar náið og meira samband við erlenda íbúa en ella. Nefndin fagnar hversu vel er að staðið að mótttöku nýrra íbúa og málefnum innflytjenda í Fjarðabyggð.                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                      

 

4.

1103057 - Breiðablik 2011

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir samskiptum við Velferðarráðuneytið og fundum með deildarstjóra heimaþjónustu. Nefndin ákveður að heimasækja Breiðablik og Bakkabakka í októbermánuði.

 

5.

1005030 - Dagvistun aldraðra

Formaður sem sat þennan lið fundar í gegnum síma, gerði grein fyrir fundum sem hún ásamt félagsmálastjóra og deildarstjóra félagslegrar heimaþjónustu hafa átt að undanförnu. Bæjarstjóri hefur komið að vinnunni og fundað reglulega með starfsfólki og formanni nefndar. Fundað hefur verið ásamt fulltrúum HSA og leitað upplýsinga um starfsemi dagvistunar hjá Árborg og FAS. Mikilvægt að byrja á verkefninu til þess að mæta þörf sem hefur myndast á Norðfirði.

 

6.

1101237 - Uppsalir dvalar- og hjúkrunarheimili 2011

Málinu vísað til mannauðs- og fjármálastjóra.

 

7.

1108056 - Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd

Umræða og vinna við fjárhagsáætlun.
Mannahaldsblöðum var skilað til mannauðsviðs 23.09.2011. Mikilvægt að nefndin gefi sér tíma til þess að meta þörf fyrir verkefni á árinu 2012 miðað við forsendur rammans. Formaður og sviðsstjóri funda með bæjarráði þann 10.10. nk. Nefndin samþykkir aukafund vegna fjárhagsáætlunarvinnu í næstu viku.

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.

 

 

 

 

 

19. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 19. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, mánudaginn 12. september 2011 og hófst hann kl. 16:45

 

 

Fundinn sátu: Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Ásta Eggertsdóttir, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, Gunnar Ragnar Jónsson, Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir, Helga Kristjana Eyjólfsdóttir deildarstjóri heimaþjónustu og Sigrún Þórarinsdóttir félagsmálastjóri. Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri sat hluta fundar.

 

Fundargerð ritaði:  Sigrún Þórarinsdóttir

 

Dagskrá:

 

1. 1108142 – Réttindagæslumenn fatlaðs fólks

Sigurlaug Gísladóttir sat þennan lið fundar og kynnti hlutverk réttindagæslumanns skv. lögum nr. 88/2011. Meginhlutverk eru m.a. að fylgjast með högum fólks með fötlun, aðstoða það við gæslu á réttindum sínum, veita þeim sem til réttindagæslumanns leita, stuðning og aðstoð við að leita réttar síns. Fatlaður einstaklingur getur leitað til trúnaðarmanns með allt sem varðar réttindi hans. Einnig getur réttindagæslumaður tekið upp mál að eigin frumkvæði.

Nefndin þakkaði Sigurlaugu fyrir góða kynningu en starfssvæði hennar er víðfemt og nær frá Vopnafirði til Hornafjarðar.

 

2.

1103057 - Breiðablik 2011

Félagsmálastjóri leggur fram eldri gögn um málefni Breiðabliks og rekur ferilinn en málið hefur verið til umfjöllunar í nefnd frá 2008. Félagsmálastjóri og deildarstjóri heimaþjónustu funduðu um stöðu Breiðabliks þar sem farið var yfir það sem eftir stendur. Búið er að senda fyrirspurn á framkvæmdasjóð aldraða og óskað verður eftir fundi með forsvarsmönnum HSA. Bæjarstjóri sat auk þess þennan lið fundar og greindi frá fundi sem haldinn var í Breiðablik fyrir stuttu. Þann fund sat einnig deildarstjóri heimaþjónustu.

 

3.

1108056 - Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd

Bæjarstjóri sat þennan lið fundar og fylgdi úthlutun bæjarráðs á fjárheimildum nefnda úr hlaði.

 

Bæjarráð samþykkti á fundi 5. september fjárhagsramma til félagsmálanefndar fyrir fjárhagsárið 2012. Fjárhagsrömmum er úthlutað á grunni fjárhagsáætlunar 2011 en tekið er tillit til áhrifa nýrra kjarasamninga á laun- og launatengd gjöld. Reynist endanleg launaáætlun (mannahaldsáætlanir stofnana) lægri en gert er ráð fyrir í fjárhagsramma nú, miðað við gefnar forsendur, mun fjárhagsramminn lækka í samræmi við það. Í forsendum er gert ráð fyrir 2,5% hækkun á vöru- og þjónustukaupum og 5% hækkun á þjónustugjaldskrám stofnana. Nefndir geta eðlilega komið með tillögur til bæjarráðs um að breyting á gjaldskrám verði önnur en miðað er við hér, sé það fest í stefnumið og svigrúm sé til staðar innan fjárhagsrammans. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að bregðast verði við kostnaðarhækkunum með sérstökum ákvörðunum og aðgerðum til að lækka útgjöld innan málaflokkanna. Haldið verður áfram að leita leiða til hagræðingar. Taki bæjarráð í fjárhagsáætlunarferlinu skýrt afmarkaða ákvörðun um að leggja af eða draga úr tilteknum rekstri eða þjónustu mun fjárhagsrammi lækka í samræmi við það. Fjárhagsáætlun sem skilað er af hálfu nefndar og sviðsstjóra til fjármálasviðs skal vera innan úthlutaðs ramma.

 

Samkvæmt fjárhagsáætlunarferlinu ber nefndum að fela sviðstjórum undirbúning starfs­áætlunar og tillagna í frumvarp að fjárhagsáætlun í samræmi við stefnukort og forgangsröðun. Til hliðsjónar eru meðfylgjandi reglur sveitarfélagsins um ferli og framsetningu fjárhagsáætlunar hjá Fjarðabyggð.

 

Fjárhagsrammi félagsmálanefndar vegna ársins 2012 er eftirfarandi:

-         Aðrar tekjur                                   29.784 þús.kr.

-         Laun og launatengd gjöld             136.951 þús.kr.

-         Húsaleiga                                      21.843 þús.kr.

-         Annar rekstrarkostnaður               77.708 þús.kr.

Samtals                                        206.718 þús.kr.

 

 Þeim tilmælum er beint til félagsmálanefndar að leita allra leiða til frekari hagræðingar og gæta ýtrasta aðhalds eins og áður í rekstri komandi árs. Starfs- og fjárhagsáætlunum skal skila eigi síðar en 21. október nk. Þá er einnig gert ráð fyrir fundi sviðsstjóra og formanns nefndar með bæjarráði þann 10. október nk.

 

Nefndin felur sviðsstjóra undirbúning starfsáætlunar og tillagna í frumvarp að fjárhagsáætlun í samræmi við stefnukort og forgangsröðun til að leggja fyrir nefndina.

 

4.

1007146 - Tilfærsla málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga

Fundargerð bakhóps lögð fram til kynningar.

 

5.

1106090 - Landsfundur jafnréttisnefnda 9.-10.september 2011

Félagsmálastjóri gerði grein frá landsfundinum sem haldinn var dagana 9.-10. september sl. í Kópavogi. Meðal umfjöllunarefna landsfundar var staða mála í sveitarfélögum í notkun jafnréttis- og framkvæmdaáætlana. Jafnréttisstofa mun birta síðar í haust yfirlit yfir stöðu sveitarfélaga í jafnréttismálum. Einnig var á landsfundinum fjallað um aðgerðaáætlanir vegna kynbundins ofbeldis sem og jafnréttismál vegna málefna fatlaðs fólks.

 

Félagsmálastjóri hefur unnið að greinargerð um stöðu jafnréttismála í Fjarðabyggð sem verður lögð fyrir næsta nefndarfund þann 26. september nk.

 

 

6.

1108138 - Málefni eldri og hjálparþurfi einstaklinga sem búa í Neskaupstað

Lagt fram erindi um málefni aldraðra í Neskaupstað. Nefndin felur félagsmálastjóra að svara erindinu bréfleiðis.

 

7.

1109086 - Úrræði sveitarfélaga til að rjúfa einangrun innflytjenda 2011

Frestað til næsta fundar.

 

8.

1104004 - Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands árið 2011

Fundargerðir SkólAust lagðar fram til kynningar.

 

9.

1109087 – Fjárhagsaðstoð - trúnaðarmál

Lögð fram umsókn um fjárhagsaðstoð. Nefndin hafnar umsókn þar sem hún fellur ekki undir reglur um fjárhagsaðstoð. Félagsmálastjóra falið að svara erindinu. Bókun færð í trúnaðarbók.

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:55.

 

18. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 18. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, þriðjudaginn 30. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:30

 

 

Fundinn sátu: Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Ásta Eggertsdóttir, Gunnar Ragnar Jónsson, Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir. Hluta fundar sátu Tinna Hrönn Smáradóttir iðjuþjálfi og Helga Eyjólfsdóttir deildarstjóri heimaþjónustu.

 

 

Fundargerð ritaði:  Sigrún Þórarinsdóttir, félagsmálastjóri

 

Nefndin bauð Tinnu Hrönn Smáradóttur iðjuþjálfa velkomna til starfa en hún kemur til með að hafa umsjón með málefnum fatlaðs fólks innan félagsþjónustusviðs auk annarra verkefna.

 

Dagskrá:

 

1.

1106010 - Framtíð félagsstarfs í Fjarðabyggð

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir fundi með bæjarráði þann 23.08.2011 sl. þar sem fjallað var um framtíð félagsstarfsins og samþykktar tillögur félagsmálanefndar um áframhaldandi félagsstarf í sveitarfélaginu. Nefndin óskar eftir því að mál er varðar aðstöðu félagsstarfsins á Stöðvarfirði verði á dagskrá næsta fundar.

 

2.

1108083 - Frávikagreining í fjárhagsáætlun 2011

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir vinnu vegna frávikagreiningar og fundi með bæjarráði þann 23.08.2011 sl. Nefndin fór yfir minnisblað félagsmálastjóra. Útgjöld vegna fjárhagsaðstoðar eru hærri fyrstu sex mánuði ársins en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir. Aukningu má fyrst og fremst rekja til fjölgunar í hópi þeirra sem sækja um fjárhagsaðstoð til sveitarfélagsins. Fyrirséð að áframhald verði á fjölgun umsókna vegna efnahagsástandsins í þjóðfélaginu.

 

3.

1108029 - Fjárhagsáætlun 2012

Lagt fram til kynningar tímaplan fjármálastjóra vegna fjárhagsáætlunargerðar ársins 2012 og fjárhagsáætlunarferli.

 

4.

1108124 - Réttindagæslumenn fatlaðs fólks

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir fundi sem hún átti nýverið með Sigurlaugu Gísladóttur, nýskipuðum réttindagæslumanni á Austurlandi. Nefndin óskar eftir fundi með Sigurlaugu og kynningu á hennar starfi.

 

5.

1107012 - Rannsókn á nauðung í vinnu með fötluðu fólki

Lagt fram til kynningar.

 

6.

1106090 - Landsfundur jafnréttisnefnda 9.-10.september 2011

Lagt fram til kynningar fundarboð á landsfund jafnréttisnefnda sem haldinn verður í Kópavogi dagana 9.-10. september nk. Félagsþjónustusvið sendi síðast fulltrúa á landsfundinn haustið 2008. Nefndin samþykkir ferð félagsmálastjóra og nefndarmanns á landsfundinn.

 

7.

1108072 - Beiðni um afhendingu jafréttisáætlunar, ásamt framkvæmdaáætlun

Lögð fram beiðni um afhendingu jafnréttisáætlunar. Áætlun var unnin á sínum tíma árið 2008. Félagsmálastjóra falið að svara erindi Jafnréttisstofu.

 

8.

1108125 - Könnun á leiguíbúðum sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

 

9.

1108126 - Fjöldi erlendra í sveitarfélögum

Lagt fram til kynningar.

 

10.

1108133 - Eftirfylgni mála í nefnd 2011

Farið yfir eftirfylgd mála, umfjöllun um skipulag haustins innan sviðsins og drög að verkáætlun haustannar 2011 kynnt og rædd.

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:55.

 

17. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 17. fundur  

haldinn í fundarsal bæjarskrifstofu að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, mánudaginn 15. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:30

 

 

Fundinn sátu:

Svanbjörg Pálsdóttir formaður, Ásta Eggertsdóttir, Gunnar Ragnar Jónsson, Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir félagsmálastjóri sem jafnframt ritar fundagerð.

 

 

Dagskrá:

 

1.

1106010 - Framtíð félagsstarfs í Fjarðabyggð

Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri sat hluta fundar. Lögð fram drög starfsmanna félagsþjónustusviðs að skipulagi og framtíðarsýn félagsstarfs eldri borgara í Fjarðabyggð.

 

Nefndin fullvann minnisblað og útfærði nánar tillögur.Nefndin samþykkir tillögu II í minnisblaði að félagsstarf eldri borgara verði áfram á hendi félagsþjónustusviðs Fjarðabyggðar sbr.40.gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

 

Nefndin telur mikilvægt að markmið og innihald starfsins verði skilgreint með það að markmiði að efla fræðslu og námskeiðahald um réttindi eldri borgara og almenn lífsgæði.

 

Nefndin felur jafnframt deildarstjóra félagslegrar heimaþjónustu í samráði við félagsmálastjóra að vinna starfslýsingar starfsmanna félagsstarfsins með ofangreind atriði í huga og leggja fyrir nefndina.

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:10.