Spurt og svarað um vefþjónustu:



Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Upplýsingaþjónusta á vef Fjarðabyggðar er í eftirtöldum flokkum.

·         Fréttir

·         Auglýsingar frá Fjarðabyggð og stofnunum hennar

·         Viðburðadagatal - Einstakir viðburðir sem eru opnir öllum

·         Hátíðir og reglubundnir viðburðir

·         Félög – tengiliðir

·         Upplýsingar um starfsemi Fjarðabyggðar

·         Ferðamannaupplýsingar

·         Þjónustulýsingar

 

Vefurinn er ekki auglýsingamiðill fyrir félög, einstaklinga eða fyrirtæki

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

Íbúa Fjarðabyggðar þ.m.t.nýja íbúa – íslenska, enska, pólska.

Ferðamenn – upplýsingar á íslensku og ensku.

Áhugafólk um Fjarðabyggð.

Fjölmiðla.

Kjörna fulltrúa og starfsmenn Fjarðabyggðar.

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Á  vef Fjarðabyggðar, www.fjardabyggd.is. Upplýsingafulltrúi í síma 470 9000 og 892 9095, netfang  upplysingafulltrui@fjardabyggd.is   veitir upplýsingar um þjónustuna.

Vefur - Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna

Upplýsingar eru  settar á vefinn eins fljótt og unnt er undir ritstjórn upplýsingafulltrúa.  Mikilvægt er að upplýsingar um viðburði séu sendar tímanlega

Vefur - Hvaða gögnum þarf að skila?

   

Senda má upplýsingar um viðburði og fréttir til birtingar á vefnum á netfangið upplysingafulltrui@fjardabyggd.is eða hringja í upplýsingafulltrúa í síma 4709-000 - myndir með fréttum og viðburðum sendist sem jpg viðhengi – ekki sem hluti af word skjali.  Gott er að fá 1 – 3 myndir með hverri frétt.

Vefur - Ferli umsóknar

Upplýsingafulltrúi tekur við upplýsingum og fréttum á vefinn í netfanginu upplysingafulltrui@fjardabyggd.is eða  í síma 470 9000.

 

Upplýsingafulltrúi er ritstjóri vefsins og metur hvort efni hentar á vefinn.

 

Sendandi fær svar í tölvupósti áður en efni birtist á vefnum. Upplýsingafulltrúi les yfir texta og lagar orðalag eftir því sem þarf.

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Senda má ábendingar og kvartanir til forstöðumanns stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.  Sími 470-9000.  Ábendingar eru meðhöndlaðar eftir eðli þeirra