Spurt og svarað um tómstundir:



Líkamsræktarstöðvar

Líkamsræktir eru opnar sem hér segir

Norðfjörður í sundlauginni

 

Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 6:00 - 21:00
Föstudaga frá kl 06:00-18:00
Laugardaga frá 10:00-14:00

Lokað sunnudaga

 

Eskifjörður (í sundlauginni)

Eins og opnun sundlaugar
Mánudag til föstudagur rá 6:30-21:00
Laugardaga og sunnudaga frá 10:00-18:00

Frá september og út maí frá kl. 12:00 laugardaga og sunnudaga

 

Reyðarfjörður (í íþróttahúsinu)

Mánudag til föstudag frá kl. 06:15-21:00
Laugardaga frá kl. 10:00-14:00
Lokað sunnudaga

 

Fáskrúðsfjörður (í íþróttahúsinu)

 

Mánudag til föstudaga frá kl. 08:00-21:00
Laugardaga frá kl. 10:00-13:00
Lokað á sunnudögum

Í sumar er opið frá kl. 15:00-19:00 virka daga

 

Stöðvarfjörður (í íþróttahúsinu)

Mánudag og Miðvikudaga frá kl. 10:00-14:00
Mánudag til föstudaga frá kl.16:00-19:00
Laugardaga frá kl. 10:00-14:00
Lokað á sunnudögum

Í sumar eftir samkomulagi við forstöðumann.

Skíðamiðstöðin Oddsskarði

Komdu á skíði - austfirsku alparnir bíða eftir þér  www.oddsskard.is 

Sjá líka upplýsingar um Oddsskarð á þessum vef.

Félög og samtök

Listi yfir helstu félög og samtök sem starfa í Fjarðabyggð

Sjá einnig upplýsingar um reglulega viðburði sem eru öllum opnir og viðburðadagatal á forsíðu þessa vefs

Sundlaugar

Sundlaugar eru á Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.

 Nánar um sundlaugar og opnun... 

Aðgangseyrir er skv. gjaldskrá

Félagstarf eldri borgara

Félagsstarf eldri borgara á vegum Fjarðabyggðar er sem hér segir:
  • ·Í Neskaupstað fer félagsstarfið fram í Breiðabliki mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og annan hvern föstudag kl. 13:00-17:00. Föstudagarnir eru spiladagar.    Nánari upplýsingar veitir félagsmálafulltrúi í síma 470 9017. 

 

  • Á Eskifirði sér félag eldri borgara um öflugt félagsstarf í félagsheimilinu í Melbæ.

 

  • Á Reyðarfirði fer félagsstarfið fram í Heiðabæ, í Melgerði 13, mánudaga og fimmtudaga kl.13:00 - 17:00.

 

  • Á Fáskrúðsfirði sér félag eldri borgara um félagsstarfið og fer það fram í Glaðheimum við hliðina á sundlauginni.

 

  • Á Stöðvarfirði fer félagstarfið fram að Leynimel 7, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14:00-17:00.

Helga K. Eyjólfsdóttir  hefur umsjón með félagsstarfinu - hún er í síma 470 9000, netfang helga.k.eyjolfsdottir@fjardabyggd.is.

Í Fjarðabyggð eru starfandi fjögur félög eldri borgara.

Félagið á Eskifirði hefur aðstöðu í Melbæ.
Félagið í Neskaupstað hefur aðstöðu í Sigfúsarhúsi.   
Félagið á Reyðarfirði hefur aðstöðu í Melgerði 13 í Heiðarbæ.
Félag eldri borgara á Suðurfjörðum hefur aðstöðu í Glaðheimum sem er við hliðina á sundlauginni.


Ábendingar og fyrirspurnir


Hátíðarhöld og viðburðir



Upplýsingar um stóru hátíðrnar í Fjarðabyggð.

Einstakir viðburði, tónleikar og sýningar eru á  viðburðadagatali á forsíðu vefsins

Skoðið einnig nýja síðu með upplýsinum um reglulega viðburði í vetur. 

Heimasíða Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar á Eskifirði  er www.tonleikahus.is

Bókasöfn

Hvaða þjónustu er verið að lýsa? 

Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru fimm. Þau eru staðsett á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði.  Söfnin búa  yfir góðum safnkosti og boðið er upp á fjölbreytta þjónustu fyrir börn, unglinga og fullorðna, fyrirtæki og stofnanir. Helstu þjónustuþættir eru útlán gagna (s.s. á skáldsögum, fræðibókum, hljóðbókum, tímaritum, myndböndum og myndasögum) og upplýsingaþjónusta.  Á söfnunum eru einnig tölvur ætlaðar lánþegum, ýmist til að skoða margmiðlunardiska, sækja upplýsingar á Internetið eða til ritvinnslu. Aðstoð er veitt við heimildaleit og boðið er upp á lesaðstöðu. Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru samsteypusöfn og hýsa því bæði almennings- og skólabókasafn viðkomandi þéttbýliskjarna.

Bókasöfnin eru einnig þjónustugátt fyrir bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar. Á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins. Hægt er að sækja sér eyðublöð og hægt að fylla þau út á tölvu til útprentunar. Bókasöfnin taka á móti umsóknum og koma þeim til skila á bæjarskrifstofuna á  Reyðarfirði. Jafnframt er aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni. Starfsmenn bókasafnanna veita aðstoð við að finna rétt eyðublöð og að benda á hvar hægt sé að leita sér frekari aðstoðar eða upplýsinga.

 

Fyrir hverja er þjónustan?

Þjónusta bókasafnanna er fyrir alla.

 

Hvað kostar þjónustan?

Sjá gjaldskrá

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Bókasöfnin eru staðsett á Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.

 

Opnunartími bókasafnanna:

 

Mánudaga

Þriðjudaga

Miðvikudaga

Fimmtudaga

Föstudaga

Norðfjörður

14 - 19

14 - 17

14 - 17

14 - 17

 

Eskifjörður

14 - 17

14 - 17

14 - 19

14 - 17

 

Reyðarfjörður

14 - 17

14 - 17

14 - 17

14 - 19

 

Fáskrúðsfjörður

14 - 19

 

14 – 17

 

14 - 17

Stöðvarfjörður

 

15 - 19

 

15 - 17

 

 

 

 

 

 

 

 
Bókasafnið í Neskaupstað er til húsa í Nesskóla, jarðhæð. Skólavegi 9, 740 Neskaupstað. Sími: 477-1521. GSM: 659-8000. Netfang: boknes@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Eskifirði er til húsa í Grunnskóla Eskifjarðar. Lambeyrarbraut 16, 735 Eskifirði.  Forstöðumaður er Guðný Einarsdóttir. Sími: 476-1586. Netfang: bokesk@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Reyðarfirði er til húsa í Grunnskóla Reyðarfjarðar, jarðhæð. Heiðarvegi 14a, 730 Reyðarfirði. Forstöðumaður er Guðrún Rúnarsdóttir. Sími: 474-1366. GSM: 865-6412. Netfang: bokrey@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Fáskrúðsfirði er til húsa í Grunnskóla Fáskrúðsfjaðrar að Hlíðargötu 56 750 Fáskrúðsfirði. Forstöðumaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir. Sími: 475-9016. Netfang: bokfas@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Stöðvarfirði er til húsa í Grunnskólanum á Stöðvarfirði, Skólabraut 20, 755 Stöðvarfirði.  Forstöðumaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir. Sími: 475-9017. Netfang: bokstod@fjardabyggd.is

 

Hvaða skilyrði eru sett til að hægt sé að sækja um skírteini?

Við kaup á skírteini þarf að sýna persónuskilríki. Börn og unglingar yngri en 18 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu safnanna.

 

Hvernig eru ábendingar og eða kvartanir meðhöndlaðar?

Viðkomandi forstöðumaður safns tekur við ábendingum/kvörtunum á staðnum, í gegnum síma eða tölvupóst.

Einnig er hægt að hafa samband við forstöðumann safnastofnunar, Pétur Sörensson: sími: 470-9063. Fax: 470 9001, netfang: safnastofnun@fjardabyggd.is.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

Forstöðumenn viðkomandi safna í samvinnu við Safnastofnun.

 

Tengiliður vegna þjónustu

Forstöðumaður Safnastofnunar Pétur Sörensson sími 470 9063 og netfang safnastofnun@fjardabyggd.is

Félagsmiðstöðvar

Hvaða þjónustu er lýst

Félagsmiðstöðvar mæta þörf 13 til  16 ára unglinga fyrir uppbyggilegt og gefandi félagsstarf í frítíma þeirra.  Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfinu og að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings. Í öllum félagsmiðstöðvum starfa unglingaráð sem móta viðfangsefni líðandi stundar í félagsmiðstöðinni og eru málsvarar unglinganna. Forvarnir meðal unglinga, hvað varðar reykingar, vímuefni og einelti er stór þáttur í starfinu.

 

Fyrir hverja er þjónustan ?

Þjónustan er fyrir 13-16 ára unglinga

 

Hvað kostar þjónustan?

Það kostar ekkert að koma í félagsmiðstöðina á opnunartíma. Kostnaði á böll, tónleika og aðra viðburði er haldið í lágmarki. Ferðalög eru yfirleitt greidd með  fjáröflun unglinganna.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Félagsmiðstöðvarnar í Fjarðabyggð eru fyrir unglinga í 8. - 10. bekk og þær eru opnar þrisvar í viku að jafnaði á starfstíma skólanna frá ágúst til maí. Opnunartímar eru frá kl. 20:00-22:00  tvo daga í viku og frá 20:00-23:00 á föstudögum. Á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði er opið annað hvert föstudagskvöld.  Jafnframt er opið fyrir nemendur 5.-7. bekkjar aðra hverja viku einn dag í viku frá kl. 17:00-19:00. Vegna hefða eru aldursmið aðeins mismunandi  á milli þéttbýlisstaða.

Félagsmiðstöðvar

  • Félagsmiðstöðin Atóm, Egilsbraut 4, Norðfirði  740 Fjarðabyggð, sími: 477 1819,  atom@fjardabyggd.is 

 

  • Félagsmiðstöðin Knellan, Strandgötu 49, Eskifirði, 735 Fjarðabyggð, sími 476 0046,  knellan@fjardabyggd.is 

 

  • Félagsmiðstöðin Zveskjan, Austurvegi 1, Reyðarfirði, 730 Fjarðabyggð, Sími 474 1402,  zveskjan@fjardabyggd.is 

 

 

.is

 

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Þeim skal beint til forstöðumanns viðkomandi félagsmiðstöðvar og ef við á til  fræðslustjóra í síma 470 9000 eða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

 Fræðslustjóri  í síma 470 9000, netfang fjardabyggd@fjardabyggd.is

 

Tónlistarskólar

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Í Fjarðabyggð eru þrír tónlistarskólar, Tónskóli Neskaupstaðar, Tónlistarskóli Eskifjarðar- og Reyðarfjarðar og Tónlistarskóli Fáskrúðs- og Stöðvarfjarðar.  Skólarnir bjóða upp á nám í tónfræði, hljóðfæraleik og söng.
 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

Allir íbúar Fjarðabyggðar geta sótt um í tónlistarskólunum. Skólastjórar skólanna ákveða hvernig tekið er inn í skólana. Fjöldi og fjölhæfni starfsliðs og ásókn í hljóðfæra- og söngnám stýra hversu marga er hægt að innrita hverju sinni.

 

Hvað kostar þjónustan?

Sjá gjaldskrá.  

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Tónlistarskólarnir eru í húsnæði grunnskólanna í hverjum byggðarkjarna.  Kortasjá Fjarðabyggðar

 

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Sótt er um tónlistarnám hjá tónlistarskólastjórum í ágúst fyrir haustönn og desember fyrir vorönn.

 

Ferli umsóknar  

Einstaklingar og foreldrar/forráðmenn barna innrita sig með því að fylla út eyðublað eða hringja í hlutaðeigandi tónlistarskólastjóra. Tónlistarskólastjóri metur umsóknir og bregst við í tölvupósti eða með símtali innan hálfs mánaðar.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og/eða kvörtunum skal komið til viðkomandi skólastjóra eða fræðslustjóra á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.

 

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Fræðslustjóri, thoroddur.helgason@fjardabyggd.is Sími: 470 9000 





. 750 Fjarðabyggð, sími 475 9035 og í grunnskólanum að Skólabraut, 755 Stöðavarfirði, sími 475 9036. tonfast@fjardabyggd.is
Heimasíða skólans er www.tonfast.is  .  Umsókn um skólavist

 


Frístundaheimili

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Frístundaheimili Fjarðabyggðar bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6 – 9 ára barna lýkur. Leitast er við að bjóða upp á spennandi viðfangsefni sem veita börnunum útrás fyrir leik- og sköpunarþörf þeirra.  Frístundaheimilin eru opin eftir að skóladegi lýkur til kl. 16:30 alla daga. Á starfsdögum eru frístundaheimilin opin frá kl. 8:00 nema annað sé tekið fram. Frístundaheimilin eru lokuð á starfsdögum, í vetrar-, jóla-, páska- og sumarfríum grunnskólanna
 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

 6 – 9 ára börn sem eru skráð í grunnskóla Fjarðabyggðar

 

Hvað kostar þjónustan?

Sjá gjaldskrá

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Frístundaheimilin eru í grunnskólunum á hverjum stað - sjá kortasjá Fjarðabyggðar. Upplýsingar veita forstöðumenn frístundaheimilanna.

 

Norðfjörður  sími 477-1155

Eskifjörður:  sími 476-1469

Reyðarfjörður: sími 4741547

Fáskrúðsfjörður sími 475 1296 

 

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Sótt er um dvöl á frístundaheimili fyrir komandi skólaár með því að fylla út umsóknareyðublað  sem fást á bókasöfnunum. Forstöðumenn frístundaheimila  vinna úr umsóknum. Börn sem eru að hefja skólagöngu hafa forgang að dvöl á frístundaheimilum.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

Rétt útfylltu umsóknareyðublaði   

Ferli umsóknar  

Forráðmenn innrita börn sín í maímánuði fyrir næsta skólaár. Breytingar frá því að umsókn er skilað skal tilkynna viðkomandi forstöðumanni. Staðfesting á innritun berst til foreldra í byrjun ágúst. Sótt er um á eyðublaði sem er á vef Fjarðabyggðar og liggur frammi á bókasöfnunum. Forstöðumaður viðkomandi frístundaheimilis metur umsóknir. Þegar forstöðumaður viðkomandi frístundaheimilis  hefur samþykkt umsókn er gerður dvalarsamningur.   Upplýsingar um niðurstöðuna eru sendar til umsækjanda með tölvupósti.

 

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og/eða kvörtunum skal komið til skólastjóra eða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.   Einnig er hægt að koma ábendingum og/eða kvörtunum beint til forstöðumanna viðkomandi frístundaheimilis.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Fræðslustjóri, Þóroddur Helgason  sími 470 9000, thoroddur.helgason@fjardabyggd.is