Hér eru upplýsingar um eftirfarandi atriði
1) Sorphirða
2) Söfnunarstöðvar
3) Móttökustöð
4) Endurvinnanlegt sorp – Græna tunnan
5) Garðaúrgangur
6) Skilagjaldskyldar umbúðir
7) Nytjahlutir
8) Föt og klæði
9) Gjaldskrá vegna sorphirðu
10) Samþykkt um sorphirðu í Fjarðabyggð
11) Sorphirðuhandbók Fjarðabyggðar
1) Sorphirða
Íslenska Gámafélagið, Hjallanesi 10, á Reyðarfirði hefur umsjón með sorphirðu í Fjarðabyggð, sími 840 5840 Róbert. Sorphirðudagatal 2012.
Sorp er hirt á tveggja vikna fresti á þessum dögum:
|
|
Gráa tunnan
|
Græna tunnan
|
|
Norðfjörður
|
Miðvikudaga
|
Föstudaga
|
|
Eskifjörður
|
Miðvikudaga
|
Föstudaga
|
|
Reyðarfjörður
|
Fimmtudaga
|
Föstudaga
|
|
Stöðvarfjörður/ Fáskrúðsfjörður
|
Fimmtudaga
|
Föstudaga
|
Athugið að veður og aðrir þættir geta haft áhrif á hversu langan tíma tekur að hirða í hvert sinn. Þá eru íbúar beðnir um að hafa gott aðgengi að sorptunnum til að tryggja skilvirka sorphirðu t.d. með því að muna að moka frá tunnunum og staðsetja þær ekki of langt frá vegi.
2) Söfnunarstöðvar
Söfnunarstöðvar eru ætlaðar almenningi og er hámarks farmstærð 2 m3. Stærri farmar skulu fluttir á móttökustöð á Reyðarfirði í samráði við þjónustuaðila. Á söfnunarstöðvum Fjarðabyggðar skal greiða fyrir móttöku úrgangs sem hér segir: Fyrir allan úrgang frá heimilum, sem ekki fellur til við daglegan heimilisrekstur og ber ekki úrvinnslugjald eða skilagjald, eins og t.d.
• frá byggingu eða breytingu íbúðarhúsnæðis
• frá bifreiðaviðgerðum
• lagervörur eða fyrningar yfirteknar við húsakaup
• úrgangur vegna húsdýrahalds.
Söfnunarstöðvar eru á eftirfarandi stöðum:
- Eskifjörður: Söfnunarstöðin við Hafnargötu. Sími 476 1665.
- Fáskrúðsfjörður: Söfnunarstöðin á Nesvegi 13. Sími 475 1144.
- Norðfjörður: Söfnunarstöðin er við smábátahöfnina. Sími 477 1302.
- Reyðarfjörður: Söfnunarstöðin á Hjallanesi 8 . Sími 474 1555.
- Stöðvarfjörður: Söfnunarstöðin á Byrgisnesi. Sími 475 8814.
- Mjóifjörður: Öllu sorpi er skilað í söfnunargám sem er staðsettur við höfnina.
Söfnunarstöðvar eru opnar sem hér segir:
|
Reyðarfjörður
|
Neskaupstaður
|
Eskifjörður
|
Fáskrúðsfjörður
|
Stöðvarfjörður
|
|
mán
|
14:00
|
18:00
|
15:00
|
18:00
|
15:00
|
18:00
|
|
|
|
|
|
Þri
|
14:00
|
18:00
|
|
|
|
|
14:00
|
18:00
|
|
|
|
mið
|
14:00
|
18:00
|
15:00
|
18:00
|
15:00
|
18:00
|
|
|
|
|
|
fim
|
14:00
|
18:00
|
|
|
|
|
|
|
14:00
|
18:00
|
|
fös
|
14:00
|
18:00
|
14:00
|
18:00
|
14:00
|
18:00
|
|
|
|
|
|
Lau
|
10:00
|
14:30
|
10:00
|
14:30
|
10:00
|
14:30
|
10:00
|
14:30
|
10:00
|
14:30
|
Íslenska gámafélagið ehf. – s. 577-5757 - Veffang: igf@igf.is
3) Móttökustöð
Móttökustöð Fjarðabyggðar er á Reyðarfirði. Þar er tekið á móti stærri förmum af úrgangi frá fyrirtækjum og einstaklingum. Allur úrgangur í Fjarðabyggð er fluttur á móttökustöð til vinnslu. Á móttökustöð er úrgangur flokkaður og ýmist fluttur til urðunar eða sendur til endurvinnslu. Íslenska Gámafélagið sér um rekstur móttökustöðvar og sér um að pressa pappa og flytja hráefni til endurvinnslu beint frá Reyðarfirði. Róbert Beck (s. 840 5840) er yfirmaður Íslenska Gámafélagsins á Austurlandi.
4) Endurvinnanlegt sorp – Græna tunnan
Fjarðabyggð hefur útvegað öllum íbúum sínum Græna tunnu undir þann hluta heimilissorpsins sem er endurvinnanlegur. Í Grænu tunnuna má setja allan pappír heimilisins, bylgjupappa og pappa, plast, minni málmhluti (t.d. niðursuðudósir, málmlok af glerkrukkum) og fernur. Gler má alls ekki fara í tunnuna þar sem innihald tunnunnar er handflokkað og því getur brotið gler verið varasamt. Einnig getur glerið skemmt annað hráefni í tunninni og gert það óhæft til endurvinnslu. Eins mega rafhlöður ekki fara í tunnuna þar sem þær eru flokkaðar sem spilliefni.
Dagblöð – Beint í tunnuna.
Tímarit – Beint í tunnuna
Bæklingar – Beint í tunnuna
Bylgjupappi – Beint í tunnuna
Fernur/ Sléttur pappi – Í glærum poka*
Plastumbúðir – Í glærum poka
Minni málmhlutir – Í glærum poka
Munið að hreinsa umbúðir vel og skola fernur
*Fernum og sléttum pappa sem raðað er hverju ofan í aðra má setja beint í tunnuna.
Sjá nánar um hvað tilheyrir þessum flokkum á heimasíðu Íslenska Gámafélagsins
5) Garðaúrgangur
Íbúar geta losað sig við garðaúrgang á eftirfarandi stöðum. Við viljum benda íbúum á að tæma garðaúrgang úr pokum við losun. Plast getur tekið allt að 100 ára að brotna niður í náttúrunni.
- Eskifjörður: Gámur fyrir garðaúrgang er við gámavöllinn, hafnarmegin. Fáskrúðsfjörður: Losað í gryfju við hlið söfnunarstöðvar.
- Norðfjörður: Gámur fyrir garðaúrgang verður við þjónustumiðstöð.
- Reyðarfjörður: Losað við Teigagerði fyrir austan byggðina.
- Stöðvarfjörður: Losað við Byrgisnes
6) Skilagjaldskyldar umbúðir
- Eskifjörður: Fjarðaþrif ehf. sér um móttöku. Tekið er á móti umbúðum á föstudögum kl. 14-17 í gámi við Strandgötu 12a (Böggablóm).
- Fáskrúðsfjörður: Flytjandi sér um móttöku. Tekið er á móti umbúðum á miðvikudögum kl. 15-16 í afgreiðslu Flytjanda, Grímseyri 11 b.
- Norðfjörður: Björgunarsveitin Gerpir sér um móttöku. Tekið er á móti umbúðum á þriðjudögum kl. 18:00-20:00 að Strandgötu 44. http://gerpir.123.is/.
- Reyðarfjörður: Hallgrímur Bóasson sér um móttöku. Tekið er á móti umbúðum á mánudögum kl. 17:00-20:00 í gám sem er staðsettur við Bíley, Leiruvogi 6.
- Stöðvarfjörður: Brekkan sér um móttöku. Tekið er á móti dósum og flöskum á opnunartímum verslunarinnar.
Skilagjald er 14 kr.
7) Nytjahlutir
Hægt er að skila inn nytjahlutum á allar söfnunarstöðvar sveitarfélagsins. Hlutirnir eru svo fluttir í nytjamarkað Hjálpræðishersins á Reyðarfirði, Hertex. Þar verða þeir seldir gegn hóflegu verði og rennur allur ágóði til góðgerðamála. Valborg H. Kristjánsdóttir og Örn Rúnarsson (s. 849 3286) sjá um starfsemina.
8) Föt og klæði
Deildir Rauða krossins um allt land taka á móti notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Nánari upplýsingar um starfsemi Rauða krossins á Austurlandi er að finna inna á heimasíðunni: http://redcross.is/page/rki_deildir_austurland. Í Fjarðabyggð eru fatagámar á eftirtöldum stöðum:
· Eskifjörður: Við þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar á Eskifriði, Strandgötu 6.
· Fáskrúðsfjöður: Við starfstöð Rauða Krossins á Fjáskrúðsfirði að Grímseyri 9
· Norðfjöður: Við afreiðslustöð Flytjanda, Egilsbraut 6.
· Reyðarfjörður: Við söfnunarstöðina á Hjallanesi 8.
· Stöðvarfjörður: Fyrir utan Rauða kross búðina að Fjarðarbraut 46
Hjálpræðisherinn á Íslandi er með nytjamarkaðskeðju sem heitir Hertex og er með einn nytjamarkað í Fjarðabyggð sem er á Reyðarfirði að Búðargötu 4. Þar sem tekið er á móti hlutum og fatnaði á föstudögum á opnunartíma. Nánar upplýsingar um opnunartíma er að finna á http://www.herinn.is/pages/enhet.aspx?nr=859. Ágóðinn rennur til góðgerðarmála innan Fjarðabyggðar.
9) Gjaldskrá vegna sorphirðu
10) Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.
Ábendingar og fyrirspurnir – Þessi línkur virkar ekki