Móttaka umsókna og skráning og veiting leyfa til hunda- og kattahalds.
Móttaka á kvörtunum og handsömun hunda og katta sem ganga lausir.
Hundar og kettir 3ja mánaða eða eldri eru skráningarskyldir en auk þess þarf að skrá dýr innan mánaðar eftir að þau koma á nýtt heimili.
Hreinsun hunda- og katta er í september ár hvert.
Tekið er á móti kvörtunum vegna hunda- og katta.
Handsömum hunda í lausagöngu.
Föngun villikatta.
Afskráning hunda og katta við flutning eða dauða.
Sjá einnig samþykktir um hunda- og kattahald
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?
Fyrir alla hunda og kattaeigendur og þá sem verða fyrir ónæði eða óþægindum vegna hunda- eða kattahalds.
Hvað kostar þjónustan
Greitt er fyrir leyfi til hunda- og kattahalds skv. gjaldskrá
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Dýraeftirlitsmaður veitir þjónustu þar sem hennar er þörf í Fjarðabyggð. Sími 470 9000 og dyraeftirlit@fjardabyggd.is.
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Öllum hunda- og kattaeigendum er skylt að skrá dýr eigi síður en innan mánaðar eftir að þau koma á heimili. Afskráningu þarf að tilkynna innan mánaðar ef hundur eða köttur skiptir um heimili eða deyr. Eyðublöð er hægt að nálgast á bókasöfnunum Fjarðabyggðar
Hvaða gögnum þarf að skila?
Þegar sótt erum leyfi þarf að skila útfylltu umsóknareyðublaði, vottorði frá dýralækni sem er útgefið innan ársins og samþykki allra íbúðareigenda ef búið er í fjölbýlishúsi. Yfirlýsing íbúa fjölbýlishúsa vegna leyfis til katta- eða hundahalds , Þegar afskráning er tilkynnt þarf að senda inn útfyllt eyðublað um afskráningu.
Ferli umsóknar
Hér kemur lýsing á ferli umsóknar skref fyrir skref, m.ö.o. hvernig umsóknarferlið gengur fyrir sig:
Umsókn um leyfi og afskráningu skal vera undirritað og afhent ásamt fylgiskjölum á bókasöfnunum. Einnig er hægt að senda hana til Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða á netfangið dyraeftirlit@fjardabyggd.is .
Þegar sótt hefur verið um leyfi og það samþykkt, er númer sent til eiganda dýrsins ásamt afriti af afgreiddu umsóknarblaði og samþykktum Fjarðabyggðar um hunda- og kattahald.
Þegar hundur eða köttur er afskráður er viðkomandi endurgreitt leyfisgjald hlutfalllega m.v. líðandi ár.
Árlegt leyfisgjald er sent út í greiðsluseðli, gjalddagi 1. nóvember, eindagi er 30. nóvember. Innifalið í leyfisgjaldinu er ormahreinsun og trygging gagnvart þriðja aðila. Boðun um ormahreinsun er send út árlega í september og er skylt að mæta með dýrin í hana.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Eðli ábendinga og kvartanir eru metnar í hverju tilfelli fyrir sig og lögð áhersla á að bregðast við í samræmi við það. Ábendingum og kvörtunum má koma beint til starfsmanns dýraeftirlits, netfang dyraeftirlit@fjardabyggd.is eða síma 470-9000.
Einnig er hægt að senda ábendingar og kvartanir til forstöðumanns stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og í síma 470 9000