Hér eru upplýsingar um eftirfarandi atriði
1) Sorphirða
2) Söfnunarstöðvar
3) Móttökustöð
4) Grenndargámar
5) Garðaúrgangur
6) Skilagjaldskyldar umbúðir
7) Nytjahlutir
8) Föt og klæði
9) Gjaldskrá vegna sorphirðu
10) Samþykkt um sorphirðu í Fjarðabyggð
11) Soprhirðuhandbók Fjarðabyggðar 2010
1) Sorphirða
Íslenska Gámafélagið, Hjallanesi 10, á Reyðarfirði hefur umsjón með sorphirðu í Fjarðabyggð, sími 840 5840 Róbert. Sorphirðudagatal 2012. Sorp er hirt á tveggja vikna fresti á þessum dögum:
· Norðfjörður mánudaga - miðvikudaga. ( N )
· Eskifjörður mánudaga - þriðjudaga. ( E )
· Reyðarfjörður þriðjudaga - miðvikudaga ( R )
· Stöðvarfjörður fimmtudaga ( S )
· Fáskrúðsfjörður fimmtudaga-föstudaga ( F )
Sorphirða hefst í öllum byggðakjörnum í innbænum og verktakar vinna sig áfram í gegnum hverfin á fyrrgreindum dögum. Athugið að veður og aðrir þættir geta haft áhrif á hversu langan tíma tekur að hirða í hvert sinn.
2) Söfnunarstöðvar
Söfnunarstöðvar eru ætlaðar almenningi og er hámarks farmstærð 2 m3. Stærri farmar skulu fluttir á móttökustöð á Reyðarfirði í samráði við þjónustuaðila. Á söfnunarstöðvum Fjarðabyggðar skal greiða fyrir móttöku úrgangs sem hér segir: Fyrir allan úrgang frá heimilum, sem ekki fellur til við daglegan heimilisrekstur og ber ekki úrvinnslugjald eða skilagjald, eins og t.d.
• frá byggingu eða breytingu íbúðarhúsnæðis
• frá bifreiðaviðgerðum
• lagervörur eða fyrningar yfirteknar við húsakaup
• úrgangur vegna húsdýrahalds.
Söfnunarstöðvar eru á eftirfarandi stöðum:
-
Eskifjörður: Söfnunarstöðin við Hafnargötu. Sími 476 1665.
-
Fáskrúðsfjörður: Söfnunarstöðin á Nesvegi 13. Sími 475 1144.
-
Norðfjörður: Söfnunarstöðin er við smábátahöfnina. Sími 477 1302.
-
Reyðarfjörður: Söfnunarstöðin á Hjallaleiru . Sími 474 1555.
-
Stöðvarfjörður: Söfnunarstöðin á Byrgisnesi. Sími 475 8814.
-
Mjóifjörður: Öllu sorpi er skilað í söfnunargám sem er staðsettur við höfnina.
Söfnunarstöðvar eru opnar sem hér segir:
|
Reyðarfjörður
|
Neskaupstaður
|
Eskifjörður
|
Fáskrúðsfjörður
|
Stöðvarfjörður
|
|
mán
|
14:00
|
18:00
|
15:00
|
18:00
|
15:00
|
18:00
|
|
|
|
|
|
Þri
|
14:00
|
18:00
|
|
|
|
|
14:00
|
18:00
|
|
|
|
mið
|
14:00
|
18:00
|
15:00
|
18:00
|
15:00
|
18:00
|
|
|
|
|
|
fim
|
14:00
|
18:00
|
|
|
|
|
|
|
14:00
|
18:00
|
|
fös
|
14:00
|
18:00
|
14:00
|
18:00
|
14:00
|
18:00
|
|
|
|
|
|
Lau
|
10:00
|
14:30
|
10:00
|
14:30
|
10:00
|
14:30
|
10:00
|
14:30
|
10:00
|
14:30
|
Íslenska gámafélagið ehf. – s. 577-5757 - Veffang: igf@igf.is
3) Móttökustöð
Móttökustöð Fjarðabyggðar er á Reyðarfirði. Þar er tekið á móti stærri förmum af úrgangi frá fyrirtækjum og einstaklingum. Allur úrgangur í Fjarðabyggð er fluttur á móttökustöð til vinnslu. Á móttökustöð er úrgangur flokkaður og ýmist fluttur til urðunar eða sendur til endurvinnslu. Íslenska Gámafélagið sér um rekstur móttökustöðvar og sér um að pressa pappa og flytja hráefni til endurvinnslu beint frá Reyðarfirði. Róbert Beck (s. 840 5840) er yfirmaður Íslenska Gámafélagsins á Austurlandi.
4) Grenndargámar
Hægt er að minnka umfang heimilisúrgangs til muna með því að skila endurvinnanlegum úrgangi í grenndargáma. Í grenndargáma er hægt að setja allan pappa beint í gáminn og nú má einnig setjaí gáminn allar plastumbúðir í glærum plastpokum í gáminn
Staðsetning grenndargáma:
-
Eskifjörður: Á bak við þjónustumiðstöð,
-
Fáskrúðsfjörður: Við hlið þjónustumiðstöðvar, Grímseyri 6.
-
Norðfjörður: Á bryggju við hlið á þjónustumiðstöðvar, Egilsbraut 8
-
Reyðarfjörður: Við þjónustumiðstöð, Búðareyri 21.
-
Stöðvarfjörður: Við gamla kaupfélagshúsið.
Allur pappi og pappír má fara beint í gáminn s.s. dagblöð, tímarit, bylgjupappi, sléttur pappír og fernur. Plastumbúðir mega einnig fara í gáminn en umbúðir þurfa að vera hreinar og í glærum plastpokum. Sjá nánar um hvað tilheyrir þessum flokkum á heimasíðu Íslenska Gámafélagsins
Kortasjá
5) Garðaúrgangur
Íbúar geta losað sig við garðaúrgang á eftirfarandi stöðum. Við viljum benda íbúum á að tæma garðaúrgang úr pokum við losun. Plast getur tekið allt að 100 ára að brotna niður í náttúrunni.
-
Eskifjörður: Gámur fyrir garðaúrgang er við gámavöllinn, hafnarmegin. ATH breyting!
-
Fáskrúðsfjörður: Losað í gryfju við hlið söfnunarstöðvar.
-
Norðfjörður: Gámur fyrir garðaúrgang verður við þjónustumiðstöð.
-
Reyðarfjörður: Losað við Teigagerði fyrir austan byggðina.
-
Stöðvarfjörður: Losað við Byrgisnes
Kortasjá
6) Skilagjaldskyldar umbúðir
-
Eskifjörður: Hjalti Sigurðsson sér um móttöku. Tekið er á móti umbúðum á föstudögum kl. 14-17 í gámi við Strandgötu 12a .
-
Fáskrúðsfjörður: Flytjandi sér um móttöku. Tekið er á móti umbúðum á miðvikudögum kl. 15-16 í afgreiðslu Flytjanda, Grímseyri 11 b.
-
Norðfjörður: Björgunarsveitin Gerpir sér um móttöku. Tekið er á móti umbúðum á þriðjudögum kl. 18-21 að Strandgötu 44.
http://gerpir.123.is/.
-
Reyðarfjörður: Hallgrímur Bóasson sér um móttöku. Tekið er á móti umbúðum á mánudögum kl. 17-20 í gám sem er staðsettur við Bíley, Leiruvogi 6.
-
Stöðvarfjörður: Brekkan sér um móttöku. Tekið er á móti dósum og flöskum á opnunartímum verslunarinnar.
Skilagjald er 12 kr.
7) Nytjahlutir
Hægt er að skila inn nytjahlutum á allar söfnunarstöðvar sveitarfélagsins. Hlutirnir eru svo fluttir í Nytjamarkað sem er starfræktur í Fjarðarportinu. Þar verða þeir seldir gegn hóflegu verði og rennur allur ágóði til góðgerðamála. Sigurður Jensson (867 2647 eða postur@ymislegt.net ) er í forsvari fyrir Fjarðarport. Hægt er að snúa sér til Sigurðar til að koma á framfæri nytjahlutum. Sjá nánar upplýsingar um Fjarðaport á www.ymislegt.net
8) Föt og klæði
Flytjandi tekur á móti fatapokum og flytur þá án endurgjalds til Rauða Krossins.
Ábendingar og fyrirspurnir