Aðalfundur íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar verður haldinn mánudaginn 12. febrúar kl. 18:00 í Félagsheimilinu Skrúð.
09.02.2018
Aðalfundur íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Laxeldismál í Fáskrúðsfirði: Laxar fiskeldi og Fiskeldi Austfjarða kynna áform sín um aukið fiskeldi. Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri Fjarðabyggðar kynnir stefnu Fjarðabyggðar í fiskeldismálum
- Önnur mál
Íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn.