Um 35% starfshlutfall er að ræða frá kl. 12:55-16:00 á starfsdögum skólans.
Dvöl er heilsdagsskóli Grunnskóla Eskifjarðar.
Gert er ráð fyrir að starfið á Dvöl næsta vetur verði skipulagt af forstöðumanni í samráði við deildarstjóra elstu deildar leikskólans Dalborgar sem einnig hefur aðsetur í húsnæði skólans.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Uppeldismenntun eða reynsla sem nýtist í starfi er æskileg.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknir og umsóknarfrestur:
Umsóknafrestur er 20. ágúst 2016.
Laun eru samkvæmt samningi LNS og viðkomandi stéttarfélaga.
Frekari upplýsingar veita Hilmar Sigurjónsson, skólastjóri, í síma 895 9975 eða á netfanginu hilmar@skolar.fjardabyggd.is og Friðrik Þorvaldsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 476 1355 eða á netfanginu frissi@skolar.fjardabyggd.is.
Sótt er um starfið hér á vef Fjarðabyggðar. Einnig er tekið við umsóknum á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð, í umslagi merktu „Starfsumsókn Dvöl Grsk. Eskifjarðar“.