mobile navigation trigger mobile search trigger
02.11.2017

Afgreiðslufulltrúi á stjórnsýslu- og þjónustusviði

Fjarðabyggð auglýsir starf afgreiðslufulltrúa laust til umsóknar 

Afgreiðslufulltrúi starfar á stjórnsýslu- og þjónustusviði og annast símsvörun og þjónustu gagnvart viðskiptavinum í afgreiðslu bæjarskrifstofu á Reyðarfirði.

Helstu verkefni:

  • Símasvörun fyrir bæjarskrifstofur og þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar.
  • Tekur á móti viðskiptavinum og gestum.
  • Aðstoðar umsækjendur vegna leyfisumsókna, flutningstilkynninga o.fl.
  • Móttaka pósts og flokkun erinda og skráning.
  • Veitir ýmsa stoðþjónustu innan bæjarskrifstofu eins og við undirbúning funda og viðburða.
  • Annast innkaup og umsjón með rekstrarvörum og minniháttar skrifstofubúnaði.
  • Annast samskipti vegna mötuneytis og umsjón með skipulagningu þess í fjarveru matráðs.
  • Annast og aðstoðar við undirbúning móttöku gesta, almennra funda og sér um innkaup veitinga ef þess er óskað.
  • Aðstoðar við verkefni sem tengjast þjónustu og framkvæmdamiðstöð

Hæfniskröfur:

  • Framhaldsskólamenntun.           
  • Reynsla af þjónustu- og almennum  skrifstofustörfum.
  • Reynsla og þekking á notkun upplýsingatæknikerfa.
  • Góð tungumálakunnátta og ritfærni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð.
  • Samstarfs- og samskiptahæfileikar.
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði.

                                                                

Starfið gegnir þýðingarmiklu hlutverki í að veita íbúum góða og skilvirka þjónustu.  Rík áhersla er lögð á gott viðmót og þjónustulund.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um stöðuna.

 

Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson, bæjarritari, í síma 470 9062 eða á netfanginu gunnar.jonsson@fjardabyggd.is.

Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2017 og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í janúar 2018.

Sótt er um starfið rafrænt á vefgátt Fjarðabyggðar. Gott er að hafa öll gögn tilbúin þegar sótt er um. 
Smelltu hér til að sækja um starf.

Starfslýsing afgreiðslufulltrúi