Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna stækkunar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu.
Breytingin fellst í að skotíþróttasvæði ofan Kolabotna á Eskifirði er fellt út og gert ráð fyrir nýju vestan Bjarga á Reyðarfirði. Jafnframt er gert ráð fyrir stækkun akstursíþróttasvæðis sem fyrir er vestan Bjarga.
Samhliða tillögu að aðalskipulagsbreytingu er auglýst tillaga að deiliskipulagi aksturs- og skotíþróttasvæði vestan Bjarga skv. 41. gr. laga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu.
Skipulagssvæðið er 11,3 ha og gerir ráð fyrir akstursíþróttasvæði afmörkuðum brautum og skotíþróttasvæði með riffil- og haglabyssubrautum ásamt tengdri mannvirkjagerð.
Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugáttum í bókasöfnunum á Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði frá og með 8. maí 2015 til og með 19. maí 2015. Athugasemdarfrestur er til sama tíma.
Tillagan verður einnig til sýnis á heimasíðu Fjarðabyggðar, www.fjardabyggd.is
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð
Sjá gögn vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi
Sjá gögn vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi