mobile navigation trigger mobile search trigger
23.11.2015

Bæjarráð fagnar að óvissu hafi verið eytt

Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnaði því á fundi sínum í morgun, að innanríkisráðherra hafi eytt þeirri óvissu sem ríkt hefur um málefni Reykjavíkurflugvallar.

Bæjarráð fagnar að óvissu hafi verið eytt

Segir í bókun ráðsins, að bæjarstjórn Fjarðabyggðar hafi ítrekað bent á hversu mikilvægur Reykjavíkurflugvöllur sé landinu öllu bæði með tilliti til öryggis og þjónustu fyrir landsmenn alla.

Bókunin er eftirfarandi:

Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar því að innanríkisráðherra Ólöf Nordal hafi eytt þeirri óvissu sem málefni Reykjavíkurflugvallar hafa verið í um nokkurt skeið. Bæjarráð og bæjarstjórn Fjarðabyggðar hafa margítrekað bent á hversu mikilvægur Reykjavíkurflugvöllur er landinu öllu bæði með tilliti til öryggis og þjónustu fyrir landsmenn alla.