mobile navigation trigger mobile search trigger
15.07.2016

Blað Franskra daga komið út

Fjölskylduhátíðin Franskir dagar á Fáskrúðsfirði verður haldin í næstu viku dagana 21. - 24. júlí.  Blað Franskra Daga er komið út og er ritstjóri þess er Albert Eiríksson.  Blaðið er stútfullt af skemmtilegu efni um Frönsku dagana og lífið á Fáskrúðsfirði fyrr og nú. 

Blað Franskra daga komið út

Undirbúningur fyrir Franska daga er í fullum gangi og allir farnir að hlakka til að setja sig í franska gírinn um næstu helgi.  Heimamenn og gestir gera sér glaðan dag, auk þess sem fulltrúar frá franska vinabænum Gravelines taka þátt í hátíðarhöldunum. 

Hefð hefur myndast fyrir því að hefja Franska daga á kenderísgöngu á fimmtudagskvöldi, en segja má að hátíðin hefjist fyrir alvöru á föstudagskvöldið með brekkusöngnum á fjölskylduvænni útiskemmtun. Fleiri hefðir setja svip sinn á þessa einstöku daga. Bænum er skipt upp í hverfi eftir helstu litum litrófsins og er gaman að labba um bæinn og sjá skemmtilegar litaútfærslur hjá íbúum bæjarins

Kynnið ykkur þessa frábæru hátíð hér!

Fleiri myndir:
Blað Franskra daga komið út
Blað Franskra daga komið út