Eftirtaldar stöður við leikskóla Fjarðabyggðar eru lausar næsta skólaár:
Leikskólinn Eyrarvellir Norðfirði: Deildarstjórar og leikskólakennarar
Leikskólinn Dalborg Eskifirði: Deildarstjórar og leikskólakennarar
Leikskólinn Lyngholt Reyðarfirði: Deildarstjórar og leikskólakennarar
Leikskólinn Kæribær Fáskrúðsfirði: Deildarstjórar og leikskólakennarar
Leikskólar í Fjarðabyggð starfa í anda fjölgreindarkenningar Howards Gardners. Áhersla á læsi og stærðfræði hafa verið í starfi leikskólanna í vetur. Þá vinna allir skólar í Fjarðabyggð eftir uppeldi til ábyrgðar og ART.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
. Leikskólakennaramenntun er áskilin.
. Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
. Frumkvæði og faglegur metnaður.
. Hæfni og áhugi á að vinna í hóp.
. Reynsla af starfi með börnum.
. Ábyrgð og stundvísi.
. Góð íslenskukunnátta.
Nánari upplýsingar um stöðurnar veita skólastjórar viðkomandi skóla:
Eyrarvellir: Halla Höskuldsdóttir, s: 477 1485, halla@skolar.fjardabyggd.is
Dalborg: Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, s: 476 1341, thordismb@skolar.fjardabyggd.is
Lyngholt: Lísa Lotta Björnsdóttir, s: 474 1257, lisalotta@skolar.fjardabyggd.is
Kæribær: Ásta Eggertsdóttir, s: 475 9055, astae@skolar.fjardabyggd.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Starfslýsing - Leikskólakennari
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2018.
Sótt er rafrænt um störfin á ráðningarvef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is