mobile navigation trigger mobile search trigger
28.04.2016

Deildarstjórar við leikskólana Dalborg og Lyngholt

Lausar eru til umsóknar stöður deildarstjóra við leikskólana Dalborg á Eskifirði og Lyngholt á Reyðarfirði.

Leikskólar í Fjarðabyggð starfa í anda fjölgreindarkenningar Howards Gardners. Áhersla á læsi og stærðfræði hefur verið í starfi leikskólanna í vetur.

Þá vinna allir skólar í Fjarðabyggð eftir uppeldi til ábyrgðar og ART. 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun.
  • Reynsla af stjórnun er æskileg.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Jákvæðni og sveiganleiki í samskiptum.
  • Metnaðarfullur í starfi, hæfni og áhugi til að vinna í hóp.
  • Góð íslenskukunnátta áskilin.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Umsóknir og umsóknarfrestur

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og FL.

Umsóknarfrestur er til 17. maí nk.

Nánari upplýsingar um störfin veita skólastjórar. 

Dalborg: Sóley Valdimarsdóttir, í síma 476 1341 eða á netfanginu dalborg@skolar.fjardabyggd.is
Lyngholt: Hanna Málmfríður Harðardóttir, í síma 474 1257 eða á netfanginu hannam@skolar.fjardabyggd.is

Nánari upplýsingar um starf leikskólanna er á heimasíðum þeirra.

Einnig er sótt um störfin á heimasíðum viðkomandi skóla, undir Um leikskólann/Starfsumsókn:

http://www.leikskolinn.is/dalborg/

http://www.leikskolinn.is/lyngholt/