Leikskólinn Kæribær á Fáskrúðsfirði auglýsir eftir leikskólakennurum/starfsfólki.
Deildarstjóra í 100% starf eða leikskólakennara/starfsmanni í 90,62 % starf.
Bæði getur verið um að ræða tímabundið starf og framtíðarstarf.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun / eða sambærileg menntun.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
- Metnaðarfullur í starfi, hæfni og áhugi til að vinna í hóp.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Jákvæðni og áhugasemi.
- Stundvísi.
- Tilbúinn að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í leikskólastarfi.
Í Kærabæ eru 62 börn á aldrinum 1-6 ára. Einkunnarorð skólans eru Kunnátta,kærleikur og kæti.
Allir skólar í Fjarðabyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna. Lögð er áhersla á að starfsfólki og börnum líði vel í leik og starfi.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 6. maí 2017
Upplýsingar gefur Ásta Eggertsdóttir leikskólastýra í síma 4759055 astae@skolar.fjardabyggd.is
Umsókn og ferilskrá skal senda rafrænt á heimasíðu leikskólans, eða að Hlíðargötu 56.
Störfin henta jafnt körlum sem konum.