Laust er til umsóknar starf eigna- og framkvæmdafulltrúa Fjarðabyggðar.
Eigna- og framkvæmdafulltrúi hefur umsjón og eftirlit með öllum fasteignum Fjarðabyggðar og heldur utan um viðhalds- og nýframkvæmdir sveitarfélagsins í samvinnu við sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs.
Helstu verkefni eru:
- Yfirumsjón og eftirlit með verklegum framkvæmdum fyrir eignasjóð Fjarðabyggðar.
- Yfirumsjón og eftirlit með viðhalds- og rekstrarverkefnum fyrir eignasjóð Fjarðabyggðar.
- Yfirumsjón og eftirlit með viðhaldi leiguhúsnæðis Fjarðabyggðar.
Leitað er að aðila með iðnmenntun og/eða tæknimenntun. Framhaldsmenntun er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið er á heimasíðu Fjarðabyggðar, fjardabyggd.is, undir „Laus störf“.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Marinó Stefánsson, sviðstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs, í síma 470 9000 eða á marino.stefansson@fjardabyggd.is.
Sótt er um starfið rafrænt á vef sveitarfélagsins. Einnig er tekið við umsóknum í umslagi merktu „starfsumsókn framkvæmdasvið“ í þjónustugáttum bókasafna og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 31. október nk.