mobile navigation trigger mobile search trigger

Eistnaflug Neskaupstað

08.07.2015

Alvöru rokk í Neskaupstað 8. til 11. júlí. Á Eistnaflugi er bannað að vera fáviti.

 

Eistnaflug Neskaupstað

Eistnaflug hefur skipað sér sess á meðal fremstu tónlistarhátíða hér á landi. Þessi einstaki viðburður fer að þessu sinni fram í íþróttahúsinu í Neskaupstað dagana 8. til 11. júlí.

Verður hart rokkað þessa daga í Neskaupstað. Á meðal hljómsveita eru Dimma, Ham, Agent Fresco, Grísalappalísa og Sólstafir ásamt erlendum stórsveitum á borð við Carcass, Behemoth, Enslaved og Inquisition. Hljómsveitir og viðburðir í tengslum við hátíðina skipta tugum.

Á Eistnaflugi er bannað að vera fáviti.