mobile navigation trigger mobile search trigger
17.09.2016

Í leikskóla er lífið gott

Opnun Eyrarvalla var fagnað í dag. Leikskólanum bárust í tilefni dagsins gjafir góðar og fræðslustjóri Fjarðabyggðar frumflutti söngvísur Eyrarvalla. Þá var veitt viðurkenning vegna nafnavals nýja leikskólans og má hér sjá Höllu Höskuldsdóttur, leikskólastjóra, afhenda Guðrúnu Evu Loftsdóttur bók að launum fyrir vinningstillöguna.

Í leikskóla er lífið gott
Halla, leikskólastjóri, afhendir Guðrúnu Evu Loftsdóttur bókaverðlaunin. Fjölmennt var á opnunarhátíðinni.

Einnig tók Halla við sérlega myndarlegum lykli úr hendi Páls Björgvins Guðmundssonar, bæjarstjóra. Lykillinn er, eins og sjá má, engin smásmíði og hæfði ánægjulegu tilefninu vel. Um hönnun lykilsins og gerð sá Hlynur Sveinsson.

Mikil hátíðarstemning var á opnunarhátíðinni og glatt á hjalla, en um eða yfir 300 manns sótti hátíðina.

Eyrarvellir eru hannaðir sem átta deilda leikskóli. Framkvæmdir hófust um miðjan janúarmánuð á síðasta ári og gengu vel fram. Nú með opnun skólans, hefur sveitarfélagið náð því ánægjulega takmarki að hafa leikskólarými fyrir öll 12 mánaða börn í Fjarðabyggð og eldri.

Ákveðið var að starfsemin fengi nýtt nafn með nýrri skólabyggingu og var dómnefnd skipuð til að fara yfir innsendar tillögur. Eins og áður segir, varð hlutskörpust tillaga Guðrúnar Evu, sem þótti tvinna skemmtilega saman annars vegar staðsetningu skólans á Neseyri í Neskaupstað og hins vegar gamla nafn leikskólans, sem hann hét áður Sólvellir.

Á meðal gjafa sem skólinn hlaut voru skjávarpi og iPad spjaldtölvur frá Samvinnufélagi Útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) og tvíhjól og hlaupahjól frá VHE, verktaka byggingarframkvæmda. Fleiri góðar gjafir bárust frá foreldrafélag skólans, Vélaverkstæði G. Skúlasonar, Réttinagarverkstæði Sveins, Nestaki og Haka.

Óvæntasta gjöfin var þó vafalaust söngvísur Eyrarvalla, sem Þóroddur Helgason, fræðslustjóri, flutti við undirleik Jóns Hilmars Kárasonar og félaga. Bakraddir sungu með miklum glæsibrag Halla, leikskólastjóri og Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri. Vísunar eru sungnar við sama lag og Afi minn fór á honum Rauð og hefjast á þeim viðeigandi orðum að í leikskóla er lífið gott.

Eyrarvellir (e. Þórodd Helgason)

Í leikskóla er lífið gott
ljúft í hópinn föllum
hér er fallegt hér er flott
á fínum Eyrarvöllum

Elskum bæði fjör og frið
fögnum vinum öllum
Best á lífið lærum við
í leik á Eyrarvöllum

Alla daga endum í
ævintýrum snjöllum
Hugur frjáls og hetjan ný
hér á Eyrarvöllum

Dveljum sátt við sjávarnið
sól í glæstum fjöllum
glöð í hjarta höldum við
heim frá Eyrarvöllum

Söngvísur Eyrarvalla (pdf)

Fleiri myndir:
Í leikskóla er lífið gott
Halla, leikskólastjóri og Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri sungu bakraddir hjá Þóroddi Helgasyni, fræðslustjóra. Jón Hilmar Kárason og félagar léku undir.
Í leikskóla er lífið gott
Bæjaristjóri afhenti leikskólastjóranum veglegan lykil í tilefni af formlegri opnun Eyrarvalla.
Í leikskóla er lífið gott
Til hamingju með daginn! Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs, Halla, Páll Björgvin, Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs, Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarráðsmaður og Þóroddur.
Í leikskóla er lífið gott
Guðrún Eva Loftsdóttir, nafngjafi, með verðlaunin fyrir tillöguna sína.
Í leikskóla er lífið gott
Fjölmennt var á opnunarhátíðinni, sem átti að fara fram á leikvelli skólans. Sökum rigningaveðurs fór hátíðin hins vegar fram innandyra, sem var líka bara gaman.
Í leikskóla er lífið gott
Nemendur leikskólans gátu ekki beðið að prófa eitthvað af nýju leikföngunum sem skólanum bárust að gjöf.
Í leikskóla er lífið gott
Þessi snáði fann fullt af æðislegum risaeðlum.
Í leikskóla er lífið gott
Boðið var upp á kökur, kaffi, kókómjólk og ávaxtasafa í tilefni dagsins.