mobile navigation trigger mobile search trigger
11.01.2018

Skólaliði í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar auglýsir eftir skólaliða sem fyrst. Í skólanum eru 95 nemendur í 1.-10. bekk. Starf skólaliða felst m.a. í ræstingu, leiðsögn og umsjón með börnum í leik og starfi.

Reynsla og æskileg hæfni:

  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Ánægja af starfi með börnum
  • Snyrtimennska, dugnaður og ábyrgðarkennd
  • Kostur er að viðkomandi hafi reynslu af starfi með börnum

Um er að ræða u.þ.b. 80% starfshlutfall. Vinnurtími er frá 9:30- 16:00

Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2018

Nánari upplýsingar um starfið veitir 
Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 475-9020. Hægt er að senda tölvupóst á: eya@skolar.fjardabyggd.is  

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga. 

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar