mobile navigation trigger mobile search trigger
11.12.2017

Fjarðabyggð óskar eftir tillögum að rekstri tjaldsvæða

Fjarðabyggð óskar eftir tillögum frá áhugasömum rekstraraðilum til að sjá um rekstur fimm tjaldsvæða sveitarfélagsins.

Um er að ræða rekstur allra tjaldsvæða Fjarðabyggðar ásamt þjónustuhúsum og þeim svæðum sem þeim tilheyrir.

Tillögur skulu berast eigi síðar en 18. desember 2017 merkt "Tjaldsvæði Fjarðabyggðar 2018". Farið verður með aðsendar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veitir Anna Berg Samúelsdótti umhverfisstjóri Fjarðabyggðar anna.berg@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000. Tilboðsgögn er hægt að finna hér: Samningskaupalýsing - tjaldsvæði Fjarðabyggðar