Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir starfsmanni í sumarafleysingar í félagslegri heimaþjónustu í Neskaupstað og helgarvöktum í Breiðabliki
Um er að ræða 100% starfshlutfall frá 1. júní – 31. ágúst eða eftir samkomulagi. Að auki er unnið aðra hvora helgi í þjónustuíbúðum í Breiðabliki og er það greitt í yfirvinnu.
Starfsmaður félagslegrar heimaþjónustu veitir félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við notanda samkvæmt þjónustusamningi með það að markmiði að hann geti búið á eigin heimili við öryggi og sem bestar aðstæður. Í starfinu felst einnig aðstoð við öll almenn heimilisstörf sem notandi getur ekki annast sjálfur.
Umsækjendur þurfa að vera samviskusamir, heiðarlegir, stundvísir, með þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Íslenskukunnátta er mikilvæg sem og grunnþekking á heimilisstörfum. Gerð er krafa um hreint sakavottorð. Afnot af bíl og bílpróf er æskilegt en ekki skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 25. maí 2018.
Nánari upplýsingar veitir Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir félagsmálastjóri í síma 470-9000 eða netfanginu helga.gudlaugsdottir@fjardabyggd.is
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is