mobile navigation trigger mobile search trigger
22.05.2018

Forstöðumaður Heilsdagsskólans Dvalar

Eskifjarðarskóli auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns í heilsdagsskólanum Dvöl.

Um er að ræða 60% starf en hægt er að skoða aukið starfshlutfall ef óskað er. Starf forstöðumanns felur í sér að sjá um og skipuleggja daglegt starf ásamt annarri skipulagsvinnu. Starfið er unnið að mestu eftir hádegi.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Ábyrgð og stundvísi.

Í Eskifjarðarskóla eru um 140 börn í 1. - 10. bekk. Leitað er að starfsfólki sem er reiðubúið til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áhersla er lögð á samstarf og samvinnu. Gildi skólans eru áræði, færni, virðing og þekking.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2018. 

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Starfslýsing forstöðumanns Skólasels.
Nánari upplýsingar veita Birgir Jónsson skólastjóri, birgir@skolar.fjardabyggd.is og Ásta Stefanía Svavarsdóttir aðstoðarskólastjóri, astasv@skolar.fjardabyggd.is í síma 476-1355.

Smelltu hér til að sækja um stafið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is