mobile navigation trigger mobile search trigger
17.05.2018

Forstöðumaður Skólasels við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Grunnskóli Reyðarfjarar auglýsir laust til umsóknar starf forstöumanns í Skólaseli skólans.

Um er að ræða 60% starf. Starf forstöðumanns felur í sér að sjá um og skipuleggja daglegt starf ásamt annarri skipulagsvinnu. Starfið er unnið eftir hádegi og hægt er að skoða aukið starfshlutfall ef óskað er.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Ábyrgð og stundvísi.

Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Leitað er að starfsfólki sem eru reiðubúið til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar.

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2018.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Starfslýsing forstöðumanns Skólasels.
Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, asta@skolar.fjardabyggd.is og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, gudlaug@skolar.fjardabyggd.is í síma 474-1247.

Smelltu hér til að sækja um stafið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is