mobile navigation trigger mobile search trigger
21.08.2018

Forstöðumaður við félagsmiðstöðinna Hellirinn á Fáskrúðsfirði

Laus er til umsóknar staða forstöðumanns við félagsmiðstöðina Hellirinn á Fáskrúðsfirði. Um er að ræða tímabundið starf til níu mánaða, frá september 2018 til maí 2019, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 50-80% eftir samkomulagi. 

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• hafi menntun á framhalds- og/eða háskólastigi sem nýtist í starfi
• hafi reynslu af árangursríku starfi með ungmennum
• hafi góða skipulags- og samskiptahæfni
• sýni frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög. 

Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. Sími: 893-9098. Netfang: bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is

Starfslýsing forstöðumanns félagsmiðstöðvar.pdf

Umsóknarfrestur er til og með 4. september. Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.