mobile navigation trigger mobile search trigger
21.08.2018

Frístundaleiðbeinandi við félagsmiðstöðina Knelluna á Eskifirði

Laus er til umsóknar staða frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Knelluna á Eskifirði. Um er að ræða tímabundið starf til níu mánaða, frá september 2018 til maí 2019, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 30%. 

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• menntun sem nýtist í starfi 
• reynslu og áhuga á starfi með börnum og ungmennum
• færni í samskiptum 
Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög. 

Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. Sími: 893-9098. Netfang: bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is

Starfslýsing frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöð.pdf

Umsóknarfrestur er til og með 4. september. Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.