Áhugaverður kynningarfundur um fiskeldi og fyrirhugaða uppbyggingu á því sviði í Fjarðabyggð. Fundurinn er í Grunnskóla Reyðarfjarðar.
Fundur um fiskeldi í Fjarðabyggð
02.03.2017
Klukkan 20:00-22:00
Sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun fjalla um burðarþol fjarða gagnvart eldi á fiski og að hálfu Skipulagsstofnunar verður fjallað um mat á umhverfisáhrifum fiskeldis. Þá gerir bæjarstjóri Fjarðabyggðar grein fyrir stöðu fiskeldismála í Fjarðabyggð.
Staða fiskeldismála í Fjarðabyggð
Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri.
Burðarþol fjarða
Hafrannsóknastofnun:
Héðinn Valdimarsson, sviðsstjóri og Hafsteinn Guðfinnsson,
sérfræðingur á umhverfissviði.
Mat á umhverfisáhrifum og fiskeldi í sjó
Skipulagsstofnun: Hólmfríður Bjarnadóttir, sviðsstjóri
og Sigmar Arnar Steingrímsson, sérfræðingur á umhverfismatssviði.
Laxar fiskeldi ehf. – fyrirhuguð uppbygging í Fjarðabyggð
Gunnar Steinn Gunnarsson, rekstrarstjóri.
Kaffihlé
Fyrirspurnir og umræður
Samantekt og lokaorð
Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
Fundarstjóri er Helga Guðrún Jónasdóttir.
Allir velkomnir.