mobile navigation trigger mobile search trigger
29.07.2015

Gatnalokanir vegna Neistaflugs

Stekkjargata ásamt hluta af Hafnarbraut og Hólsgsgötu verða lokaðar tímabundið á meðan dagskrá Neistaflugs stendur um verslunarmannahelgina í Neskaupstað. 

Lokanirnar gilda föstudaginn 31. júlí frá kl. 17:00 til miðnættis, laugardaginn 1. ágúst kl. 12:00-18:00 og sunnudaginn 2. ágúst kl. 12:00-17:00. 

Akandi vegfarendur eru beðnir um að taka tillit til þessara takmarkana á umferð á meðan á lokunum stendur.