mobile navigation trigger mobile search trigger
22.11.2016

Hafnarvörður við Fjarðabyggðarhafnir

Laust er til umsóknar hjá Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð starf hafnarvarðar. 

Um er að ræða fullt starf sem er laust strax.

Starfið felur í sér hafnarvörslu, vigtun og þjónustu við viðskipavini hafnarinnar, auk annarra hafnarstarfa. Starfið er lifandi og kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki. Starfsvettvangur er hafnir innan Fjarðabyggðar, en meginstarfsstöð er Norðfjarðarhöfn.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd. kostur
  • Vigtarréttindi - kostur
  • Bílpróf
  • Góð íslensku kunnátta
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 12. desember nk. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn.

Upplýsingar um starfið veitir Sigurður Jóhannes Jónsson, forstöðumaður Þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar, sigurdur.j.jonsson@fjardabyggd.is, 470 9000.

Starfið hæfir jafnt konum sem körlum og eru konur hvattar til að sækja um.

Hafnarvörður Fjarðabyggðarhafnir - starfslýsng (pdf)

Sækja um starf

Nánar um starfsumsóknir hjá Fjarðabyggð