Sumarstöf í heimasþjónustu á Eskifirði og Reyðarfirði.
Starfsmaður félagslegrar heimaþjónustu veitir félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við notanda samkvæmt þjónustusamningi með það að markmiði að hann geti búið á eigin heimili við öryggi og sem bestar aðstæður. Í starfinu felst einnig aðstoð við öll almenn heimilisstörf sem notandi getur ekki annast sjálfur.
Umsækjendur þurfa að vera samviskusamir, heiðarlegir, stundvísir, með þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Gerð er krafa um hreint sakavottorð. Afnot af bíl og bílpróf er æskilegt en ekki skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Helga Elísabet Guðlaugsdóttir, deildarstjóri búsetuþjónustu, í síma 470 9000 eða á netfanginu helga.gudlaugsdottir@fjardabyggd.is
Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Fjarðabyggðar og einnig á bókasöfnunum.
Laun eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarferstur er til 15. maí.
Sótt er um störfin rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar.
Nánari upplýsingar um laus störf hjá Fjarðabyggð og starfsumsókn