mobile navigation trigger mobile search trigger
29.04.2016

Heimsókn embættismanna frá Akureyrarbæ

Hópur embættismanna frá Akureyrarbæ var í heimsókn í Fjarðabyggð fimmtudag og föstudag. Auk þess að skoða sig um í sveitarfélaginu og heimsækja nokkur af söfnum bæjarins fundaði hópurinn með kollegum sínum úr stjórnsýslu Fjarðabyggðar. 

Heimsókn embættismanna frá Akureyrarbæ

Starfsmenn bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar heimsóttu Akureyringa heim í fyrra og með þessari heimsókn voru norðlendingarnir að endurgjalda ánægjulega heimsókn frá síðasta vori.  Líkt og þá fór vel á með mönnum.