Laust er til umsóknar 100% staða karlkyns starfsmanns við Íþróttamiðstöð Eskifjarðar.
Best væri að starfsmaðurinn gæti hafið störf sem fyrst.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Í starfinu felst m.a.:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
- Baðvarsla í karlaklefum
- Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 12. september nk.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Jóhann Benediktsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Eskifjarðar í síma 862 0363 og á netfanginu johann.r.benediktsson@fjardabyggd.is.
Sótt er um starfið rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar.
Einnig er tekið við umsóknum á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð, í Íþróttamiðstöð Eskifjarðar og þjónustugáttum bókasafna í umslagi merktu “Starfsumsókn Íþróttamiðstöð Eskifjarðar”.