mobile navigation trigger mobile search trigger
26.07.2016

Kennarastaða við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Laus er til umsóknar staða heimilisfræðikennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar.

Um 160 nemendur stunda nám við skólann sem staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
  • Reynsla af kennslu æskileg.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst 2016.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri í síma 474 1247 eða 863 1247 eða á netfanginu asta@skolar.fjardabyggd.is.

Sótt er um starfið rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar.

Sækja um starf

Einnig er tekið við umsóknum á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð, merktum Starfsumsókn Grunnskóli Reyðarfjarðar.

Nánar um starfsumsóknir hjá Fjarðabyggð