mobile navigation trigger mobile search trigger
11.12.2017

Kennari við Nesskóla

Laus er til umsóknar staða kennara við Nesskóla það sem eftir er skólaársins. Um er að ræða kennslu í íslensku á unglingastigi auk forfallakennslu. Við Nesskóliða stunda um 210 nemendur nám.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
  • Reynsla af kennslu æskileg.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og KÍ. Umsóknarfrestur er til og með 28. desember 2017.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Einar Már Sigurðarson, skólastjóri í síma 477 1124/8631739 eða á netfanginu ems@skolar.fjardabyggd.is.

Sótt er um starfið rafrænt hér á ráðningarvef Fjarðabyggðar.