mobile navigation trigger mobile search trigger
20.03.2018

Kosningar um tillögu samstarfsnefndar Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar

Laugardaginn 24. mars nk. fara fram kosningar um tillögu samstarfsnefndar Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar.  Ef í báðum sveitarfélögum reynast fleiri kjósendur fylgjandi sameiningu en andvígir telst hún samþykkt og tekur hún þá gildi 10. júní 2018 eftir staðfestingu ráðuneytis sveita-stjórnarmála. 

Kosningar um tillögu samstarfsnefndar Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar

Kjördeildir verða starfandi í Fjarðabyggð sem hér segir:

Eskifjörður - Kirkjumiðstöðin - 09:00 - 22:00

Fáskrúðsfjörður - Grunnskólinn - 09:00 - 22:00

Norðfjörður og Mjóifjörður - Nesskóli - 09:00 - 22:00

Reyðarfjörður - Safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju - 09:00 - 22:00

Stöðvarfjörður - Stöðvarfjarðarskóli - 09:00 - 22:00

Í Mjóafirði verður ekki starfandi kjördeild á kjördag en þar geta íbúar kosið utankjörstaðar hjá Sigfúsi Vilhjálmssyni og þeim sem það vilja er bent á að hafa samband við hann. Hægt er skoða inná vef Þjóðskrá Íslands í hvaða kjördeild menn eru með því að smella hér.

Hægt er að kynna sér tillögu samstarfsnefndarinnar og nálgast annað efni og upplýsingar tengt kosningunum hér á vefnum með því að smella hér

Að lokum er rétt að hvetja fólk til að mæta á kjörstað á laugardaginn og taka þannig afstöðu til tillögu sameiningarnefndarinnar.