Íslenska Gámafélagið heldur íbúafundi vegna flokkunar lífræns úrgangs og jarðgerðar í Fjarðabyggð. Þar verður farið yfir innleiðingaferlið, tilgang verkefnisins og árangur flokkunarinnar.
Fundirnir verða í grunnskólum sveitarfélagsins eftirfarandi daga:
Nesskóli – Mánudaginn 19. mars kl. 20
Eskifjarðarskóli – Mánudaginn 19. mars kl. 20
Grunnskóli Reyðarfjarðar – Þriðjudaginn 20. mars kl. 20
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar – Þriðjudaginn 20. mars kl. 20
Stöðvarfjarðarskóli – Þriðjudaginn 20. mars kl. 18
Vonumst til að sjá sem flesta.
Ráðgjafar Íslenska Gámafélagsins