mobile navigation trigger mobile search trigger
13.07.2015

Laus störf við félagsmiðstöðvarnar í Fjarðabyggð

Laus er til umsóknar staða forstöðumanns við félagsmiðstöðina Atóm á Norðfirði.
Einnig er laus staða frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Zveskjuna á Reyðarfirði.

Um er að ræða tímabundin störf til níu mánaða, frá 21. ágúst 2015 til 20. maí 2016.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

Æskilegt er að umsækjendur...

  • ...hafi menntun á framhalds- og/eða háskólastigi sem nýtist í starfi
  • ...hafi reynslu af árangursríku starfi með ungmennum
  • ...hafi góða skipulags- og samskiptahæfni
  • ...sýni frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Guðmundur Halldórsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. Sími: 893-9098. Netfang: gudmundur.halldorsson@fjardabyggd.is

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofum Fjarðabyggðar og eins má nálgast þau á heimasíðu sveitarfélagsins, www.fjardabyggd.is Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2015. Umsókn skal skilað á bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar eða á netfangið: gudmundur.halldorsson@fjardabyggd.is