mobile navigation trigger mobile search trigger
17.05.2018

Lausar kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar skólaárið 2018-2019.

Eftirtaldar  kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar eru lausar til umsóknar skólaárið 2018-2019.

• Sérkennsla
• Raungreinakennsla
• UT kennsla
• Nýbúakennsla
• Almenn bekkjarkennsla - umsjónarkennari

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
• Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Jákvæðni og samskiptahæfni.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Ábyrgð og stundvísi.

Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði of orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar.

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk.

Umsjónarkennari starfslýsing

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, asta@skolar.fjardabyggd.is og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, gudlaug@skolar.fjardabyggd.is í síma 474-1247.

Smelltu hér til að sækja um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar