mobile navigation trigger mobile search trigger
24.11.2015

Laust starf skólaliða við Stöðvarfjarðarskóla

Um er að ræða tímabundið starf í fimm mánuði frá 1. janúar nk. Starf skólaliða er fjölbreytt og m.a. starfar skólaliðinn með nemendum á leik- og grunnskólastigi í leik og námi. Starfshlutfallið er u.þ.b 80% og vinnutími frá kl. 10:00 – 16:00.

Leitað er að starfsmanni sem hefur áhuga á starfi með börnum, er lipur í mannlegum samskiptum, hefur góða þjónustulund, frumkvæði, sjálfstæði, hreinlæti og er stundvís.

Umsóknarfrestur er til 10. desember 2015.

Nánari upplýsingar veitir Jónas E. Ólafsson í síma 475-9030 eða jonas@skolar.fjardabyggd.is