mobile navigation trigger mobile search trigger
06.06.2016

Forstöðumaður við félagsmiðstöðina Atóm

Laus er til umsóknar staða forstöðumanns við félagsmiðstöðina Atóm á Norðfirði. Um er að ræða tímabundið starf til níu mánaða, frá 21. ágúst 2016 til 20. maí 2017.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

       Æskilegt er að umsækjendur

  • hafi menntun á framhalds- og/eða háskólastigi sem nýtist í starfi
  • hafi reynslu af árangursríku starfi með ungmennum
  • hafi góða skipulags- og samskiptahæfni
  • sýni frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 

Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. Sími: 893-9098. Netfang: bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2016.

Sótt er um starfið rafrænt á vef Fjarðabyggðar. Einnig er tekið við umsóknum á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð. 

Nánar um starfsumsókn hjá Fjarðabyggð