Tvær stöður leikskólakennara við Dalborg Eskifirði eru lausar til umsóknar. Annars vegar er um 75% starf að ræða og hins vegar 100% frá og með 17. ágúst 2015.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi leikskólakennara eða hafa aðra sambærilega uppeldismenntun.
Fáist ekki leikskólakennarar verða ráðnir inn leiðbeinendur.
Umsækjandi þarf að hafa til að bera góða samskiptahæfileika, sjálfstæði í vinnubrögðum, jákvæðni, samviskusemi. Vera stundvís og hafa ánægju af að vinna með börnum. Upplýsingar veita leikskólastjórnendur í síma 476 1341 eða á netfangið dalborg@skolar.fjardabyggd.is.
Sótt er um starfið er að sækja um störfin undir hlekknum um leikskólann á http://www.leikskolinn.is/dalborg.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin.
Laun eru skv. samningum LN og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknafrestur er til 12.ágúst 2015.