Leikskólinn Eyrarvellir auglýsir eftir leikskólakennurum eða starfsfólki með sambærilega menntun.
Leikskólinn er átta deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Um er að ræða 100% starf
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun áskilin
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
• Reynsla af starfi með börnum
• Ábyrgð og stundvísi
• Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestru er til 26.október nk.
Starfslýsing leikskólakennara
Nánari upplýsingar gefur Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í síma 4771460/8478232 eða í gegnum netfangið halla@skolar.fjardabyggd.is