mobile navigation trigger mobile search trigger
30.07.2015

Leikskólakennari við Kærabæ

Leikskólinn Kæribær á Fáskrúðsfirði auglýsir eftir leikskólakennara í fullt starf.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
  • Metnaðarfullur í starfi, hæfni og áhugi til að vinna í hóp.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og áhugasemi.
  • Stundvísi.
  • Tilbúinn að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í leikskólastarfi.

Í Kærabæ eru 52 börn á aldrinum 1-6 ára. Einkunnarorð skólans eru kunnátta, kærleikur og kæti.

Allir skólar í Fjarðabyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna. Lögð er áhersla á að starfsfólki og börnum líði vel í leik og starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst 2015.

Upplýsingar gefur Ásta Eggertsdóttir leikskólastýra í síma 475 9055 astae@skolar.fjardabyggd.is

Umsókn og ferilsskrá skal senda rafrænt á heimasíðu leikskólans, eða að Hlíðargötu 56 Fáskrúðsfirði.

Störfin henta jafnt körlum sem konum. Umsækjandi þarf að geta hafið störf í ágúst 2015.

Á heimasíðunni leikskolinn.is/kaerib/ er að finna frekari upplýsingar um starfsemi Kærabæjar.