mobile navigation trigger mobile search trigger
10.02.2016

Leikskólakennari við Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennara til starfa.

Leikskólinn er fimm deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum „Grænfána skóli“ og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. mars 2016. Um er að ræða 100% starf.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptu
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur var til 10. febrúar, en hefur verið framlengdur til 24. febrúar 2016.

Nánari upplýsingar gefur Hanna Málmfríður Harðardóttir, leikskólastjóri í síma 474 1257 eða á hannam@skolar.fjardabyggd.is og einnig Elín Guðmundsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 474 1257 eða á elin@skolar.fjardabyggd.is.

Umsókn og ferilskrá skal senda rafrænt á www.leikskolinn.is/lyngholt.

Sækja um starfið