Leikskólinn Kæribær á Fáskrúðsfirði auglýsir eftir leikskólakennara eða starfsmanni í 100% starf.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða sambærileg menntun.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
- Metnaðarfullur í starfi, hæfni og áhugi til að vinna í hóp.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Jákvæðni og áhugasemi.
- Stundvísi.
- Tilbúinn að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í leikskólastarfi.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvermber.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Starfið hentar körlum jafnt sem konum.
Í Kærabæ eru 52 börn á aldrinum 1-6 ára. Einkunnarorð skólans eru Kunnátta, kærleikur og kæti.
Allir skólar í Fjarðabyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna. Lögð er áhersla á að starfsfólki og börnum líði vel í leik og starfi.
Upplýsingar gefur Ásta Eggertsdóttir, leikskólastýra, í síma 475 9095 eða á astae@skolar.fjardabyggd.is.
Umsókn og ferilsskrá skal senda rafrænt á heimasíðu leikskólans eða að Hlíðargötu 56, 750 Fáskrúðsfirði.