Viltu gerast liðveitandi í Fjarðabyggð ?
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýst eftir hressum einstaklingum til að vera liðveitendur fyrir börn/ungmenni og fullorðna í Fjarðabyggð. Vinnutími breytilegur. Liðveitandi aðstoðar við ýmis konar uppbyggilega og skemmtilega tómstundaiðju, útivist, hreyfingu og fl. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður í vinnubrögðum og tilbúin í samskipti við fólk.
Umsóknarfrestur er til 15. Júní 2018.
Viðkomandi þarf helst að vera orðin 18 ára. Þörfin er mest á Eskifirði en það vantar á fleiri staði Fjarðabyggðar í sumar
Nánari upplýsingar um störfin veitir Svanhvít Aradóttir ráðgjafaþroskaþjálfi, svanhvit.aradottir@fjardabyggd.is og í síma 8977650
Laun eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélagi.
Smelltu hér til að sækja um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is